
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi vill byggja flottara snjóvirki heldur en Kráka. Hann er mjög afbrýðissamur út í virkið hjá henni og hendir í hana snjóbolta, sem verður upphafið að miklu snjóboltastríði! Eddi verður þó að passa að börnin hans lendi ekki í miðju snjóboltastríðinu!
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Flugvélin brotlendir og Ormhildur og félagar lenda í átökum við risastór skeldýr. Þau sleppa naumlega með því að flýja inn í dimma og óhugnanlega verksmiðju þar sem skeldýrin sjá ekkert.
Hallgrímur er gerður að leiðtoga Breiðholtseyju og sendir Álf að sækja Týndu bókina og stöðva hetjurnar. Inni í verksmiðjunni finnur Ormhildur ískulda frá ósýnilegum krafti sem hvíslar: „DEYÐU“, og skugga með glóandi augu sem eltir þau.
Þáttaröð um samband mannsins við dýr, allt frá skordýrum og býflugum til sela. Kolbrún Vaka hittir skemmtilegt fólk sem varpar ljósi á sérstakt samband okkar mannfólksins við dýrin. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Við förum í heimsókn að Háafelli þar sem um 220 geitur búa. Hittum hænurnar á leikskólanum Laufásborg og dýrin sem búa á dvalarheimilinu Bæjarási. Skoðum nýjustu tísku í hundafatnaði og forvitnumst um gamla Sædýrasafnið í Hafnarfirði.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar þar sem þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum, meðal annars í taugatrekkjandi stöfunarkeppni og í sérhannaðri útgáfu af hengimanni. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur í þessum þætti eru Jóhann Alfreð Kristinsson, Jakob Birgisson, Katrín Oddsdóttir og María Hrund Marínósdóttir.
30 ára ferill Spaugstofunnar og þeirra sem stóðu á bak við hana rakinn í upprifjun á gömlu sjónvarpsefni, viðtölum við mennina á bak við þættina og fjölmarga aðra sem tengdust þeim, birtust í þeim eða voru fórnarlömb þeirra. Umsjón: Gísli Marteinn Baldursson. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Íslensk fræðslumynd í tveimur hlutum um áhrif lífsstíls á heilsufar manna, en á undanförnum árum hefur áherslan á heilbrigt líferni vegið æ þyngra í baráttunni við ýmsa sjúkdóma. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Aðalgeir Gestur Vignisson.
Þáttaröð í fjórum hlutum um líf innflytjenda á höfuðborgarsvæðinu. Fjallað er um námsmenn á Íslandi, þá sem hingað komu vegna ástar, vegna vinnu eða sóttu hér um hæli. Edoardo Mastantuoni Morbilli sem þekktur er sem Varði á Íslandi sér um þættina.
Þáttaröð frá árinu 2006 um íslenska einleikara sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmri tíma. Umsjón: Jónas Sen. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Í þessum þætti er rætt við Einar Jóhannesson klarinettuleikara.
Ferða- og matreiðsluþáttur þar sem Kristinn Guðmundsson ferðast með vini sínum, Janusi Braga Jakobssyni, og eldar fyrir hann. Að þessu sinni fara þeir félagar um Austurland þar sem Kristinn þykist vera á heimavelli því faðir hans er fæddur og uppalinn á Eskifirði. Janus er aftur á móti nánast eins og algjör túristi. Þeir hitta alls kyns fólk og lenda í ýmsu skakkaföllum en alltaf lenda þeir á fótunum og fá sér í gogginn.
Kristinn og Janus keyra í Mjóafjörð en það renna á þá tvær grímur þegar þeir uppgötva að þeir vita ekkert hvað þeir eru að gera þar. Þeir ákveða því að halda bara lengra áfram út fjörðinn þar til þeir koma að Dalatangavita og bjóða vitaverðinum upp á kvöldverð.
Óskarsverðlaunamynd frá 2018 í leikstjórn Yorgos Lanthimos. Myndin gerist á valdatíð Önnu Englandsdrottningar snemma á 18. öld. Drottningin er heilsutæp og hefur takmarkaðan áhuga á stjórnmálum, sem margir reyna að nýta sér. Þeirra á meðal er hægri hönd drottningarinnar, hertogaynjan Sarah, sem einnig er ástkona hennar. Þegar frænka Söruh, Abigail barónessa, kemur að hirðinni hefst barátta þeirra á milli um athygli drottningarinnar. Aðalhlutverk: Olivia Colman, Emma Stone og Rachel Weisz. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Dönsk heimildarmynd frá 2025 í leikstjórn Ole Juncker. Árið 2023 fékk Kunsten nútímalistasafnið í Álaborg listamanninn Jens Haaning til að endurskapa tvö listaverk sem táknuðu árstekjur meðallaunamanns í Danmörku og Austurríki. Safnið sendi honum 538 þúsund danskar krónur í reiðufé sem Haaning hugðist líma á striga málverkanna. Þegar afhenda átti verkin kom í ljós að hann hafði stungið peningunum í eigin vasa og eftir stóðu aðeins tveir tómir rammar sem báru titilinn Hirtu peningana og forðaðu þér (e. Take the Money and Run).

Loft hefur tekið jarðormana í sátt og kynnist nú ævintýralegri tilvist þeirra í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Er regnboginn áþreifanlegur? Er hægt að fara undir hann? Hvernig verður hann til?... Loft svarar öllum þessum spurningum þegar það fer með krakkana í ferðalag inn í regnbogann.
Þáttaröð fyrir alla fjölskylduna byggð á samnefndri metsölubók eftir Gunnar Helgason. Jón fer til Vestmannaeyja með liðsfélögum sínum úr Fálkum til að keppa á stærsta og skemmtilegasta fótboltamóti ársins. Draumar hans hafa þó verið slæmir þar sem eldgos og undarlega vondur markmaður eru að trufla hann. Í raunveruleikanum er það þó Ívar, brjálaði boltaþjófurinn, sem er hans helsti óvinur. Samtímis þarf Rósa að berjast fyrir tilverurétti sínum hjá Fylki. Innan vallar eru þau öll andstæðingar en utan vallar þurfa þau að snúa bökum saman og berjast upp á líf eða dauða.
Lokadagurinn er runninn upp. Hverjir komast í úrslitaleikinn? Hvar er Ívar? Getur skipstjórinn hjálpað? Og að endingu - fer að gjósa?
Ferða- og matreiðsluþáttur þar sem Kristinn Guðmundsson ferðast með vini sínum, Janusi Braga Jakobssyni, og eldar fyrir hann. Að þessu sinni fara þeir félagar um Austurland þar sem Kristinn þykist vera á heimavelli því faðir hans er fæddur og uppalinn á Eskifirði. Janus er aftur á móti nánast eins og algjör túristi. Þeir hitta alls kyns fólk og lenda í ýmsu skakkaföllum en alltaf lenda þeir á fótunum og fá sér í gogginn.
Kristinn og Janus keyra í Mjóafjörð en það renna á þá tvær grímur þegar þeir uppgötva að þeir vita ekkert hvað þeir eru að gera þar. Þeir ákveða því að halda bara lengra áfram út fjörðinn þar til þeir koma að Dalatangavita og bjóða vitaverðinum upp á kvöldverð.