Hvernig hugsa helstu listamenn og hugsuðir Svíþjóðar og hvaðan sækja þau sér innblástur og hvatningu? Í þessum þáttum er rætt við sænska meistara um sköpunarferlið, ákvarðanatöku og það hvernig mistök geta leitt til nýrra sigra.
Spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Sigyn Blöndal. Dómari: Sveinn Guðmarsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Guðrún Dröfn Emilsdóttir uppgötvaði á fullorðinsárum að hún á systur og ættingja í litlum frumbyggjaættbálki í Bandaríkjunum. Í dag berst hún fyrir því að fá inngöngu í ættbálkinn. Sigmar Guðmundsson ræðir um það við Guðrúnu Dröfn.
Nýir íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Auður Guðbjörnsdóttir býr á bænum Búlandi sem stendur við beljandi Skaftá, efst í austanverðri Skaftártungu. Á þessum slóðum hafa stærstu náttúruhamfarir Íslandssögunnar rutt bæjum og breytt landi í árþúsundir. Auður lýsir hvernig er að búa á svo stórri og víðáttumikilli bújörð og sýnir okkur þá stórbrotnu náttúru sem landareignin hefur að geyma. Lára fer einnig með bandaríska ljósmyndarann og ævintýramanninn Chris Burkard um jörðina.
Heimildarþáttaröð þar sem sveppir á Íslandi eru skoðaðir frá sjónarhorni vísinda, menningar, fagurfræði og sjálfbærni. Dagskrárgerð: Anna Þóra Steinþórsdóttir. Umsjón: Erna Kanema Mashinkila.
Fjallað er um lífríki sveppa og þann ótrúlega fjölbreytileika sem þar býr. Rætt er m.a. við Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur doktor í sveppafræðum, Heimi Janusarson garðstjóra í Hólavallagarði og Sindra Má Sigfússon tónlistarmann sem nýtir sér sveppi við tónsmíðar.

Stuttir þættir um sænska matargerðarlist.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld pælum við í heilsu. Við búum til skyr frá grunni með leikskólakrökkum í Mývatnssveit, kíkjum á kaffihús á Bolungarvík og föndrum skrautlega eyrnalokka á Eskifirði.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?

Önnur þáttaröð af Monsunum Kára, Villa og Hönnu sem lenda í alls kyns ævintýrum og þurfa að standa saman til að takast á við illmennið Ívar.

Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Apinn Punch vingast við órangútan bangsa úr IKEA 2. Leikskólakrakkar snúa aftur á Grandaborg. Endum þáttinn á skíðum í Bláfjöllum.

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Við fjöllum um gagnmerkt sagnfræðirit sem nefnist Berklar á Íslandi. Höfundurinn er Erla Dóris Halldórsdóttir, en þarna rekur hún sögu þessa skæða sjúkdóms sem var faraldur á fyrri hluta síðustu aldar og grandaði að talið er 6000 Íslendingum, mest ungu fólki. Hildur Knútsdóttir segir okkur frá nýrri hrollvekju sinni sem nefnist Irpa og gerist á eyju fyrir austan land. Rithöfundurinn María Elísabet Bragadóttir ræðir við okkur um uppáhaldsbækurnar sínar. Í Bókum og stöðum förum víð í Steingrímsfjörð og Bjarnarfjörð og verður þar meðal annars á vegi okkar fræg ófreskja sem Selkolla nendist. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Ósmann eftir Joachim B. Schmidt, Stúlku með fálka eftir Þórunni Erlu Valdimarsdóttur og Kæra fávita eftir Virginie Despentes.

Upptökur frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu.
Bandaríska tónskáldið og fiðluleikarinn Caroline Shaw er í forgrunni á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem flutt eru fjögur ólík verk eftir hana. Caroline, sem hlotið hefur fjölmörg Grammy-verðlaun, skaust upp á stjörnuhimininn árið 2013 þegar hún hlaut Pulitzer-verðlaunin. Caroline er í einleikshlutverkinu og kammerkórinn Aurora stígur einnig á svið. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason.
Breskt drama í sex þáttum frá 2025 um húsmóður í Lundúnum sem stofnar næturklúbb í Soho-hverfi við lok seinni heimsstyrjaldar til að framfleyta sér og dætrum sínum. Rekstrinum fylgja tíðir árekstrar við bæði glæpagengi og lögregluna. Aðalhlutverk: Julianne Nicholson, Ian Bonar og Fiona Button. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Sænskir leiknir heimildarþættir frá 2023. Farið er yfir sögu Svíþjóðar frá ísöld til dagsins í dag. Yfir 300 sérfræðingar komu að gerð þessarar tíu hluta þáttaraðar þar sem sögulegir viðburðir eru endurskapaðir. Sögumaður: Simon J. Berger. Leikstjórar: Niklas Fröberg og Niklas Vidinghoff.

Umfjallanir um leiki í undankeppni EM kvenna í handbolta.
Upphitun fyrir leik Íslands og Svartfjallalands í undankeppni EM kvenna í handbolta.

Leikir í undankeppni EM kvenna í handbolta.
Leikur Ísland og Svartfjallalands í undankeppni EM kvenna í handbolta.

Umfjallanir um leiki í undankeppni EM kvenna í handbolta.
Uppgjör á leik Íslands og Svartfjallalands í undankeppni EM kvenna í handbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.