

Ævintýraleg leiksýning eftir Bryndísi Ósk Þ. Ingvarsdóttur í uppsetningu leikhópsins Slembilukku. Sýningin fjallar um þrjú hugrökk börn – Gírastúlkuna, Klakadrenginn og Ósýnilegu stúlkuna sem búa uppi á háalofti undir vökulu auga Konunnar með kjólfaldinn og dularfulla hvíta tígrisdýrsins. Þegar þau ákveða að standa saman uppgötva þau óvænt hugrekki og nýja veröld sem leynist í skuggunum.

Gamanmynd frá 2019 fyrir alla fjölskylduna. Geimvera með ótrúlega ofurkrafta lendir nálægt sveitabænum þar sem hrúturinn Hreinn og félagar hans búa og þeir leggjast á eitt við að hjálpa henni að komast aftur heim áður en yfirvöld ná til hennar.
Íslensk heimildarmynd frá 2017 í leikstjórn Áslaugar Einarsdóttur og Davíðs Alexanders Corno. Rætt er við hóp ungmenna og innsýn fengin í líf þeirra, áhugamál, fjölskyldu og framtíðardrauma. Áður var rætt við sama hóp fyrir sjö árum í heimildarmyndinni Sjö ár. Nú eru krakkarnir orðnir fjórtán ára og margt breytt síðan þá. Framleiðandi: Nýr kafli ehf.
Íslensk þáttaröð í átta hlutum um líf fólks sem býr við skerta starfsgetu og/eða líkamlega fötlun af ýmsum toga. Í þáttunum fylgjumst við með fólki á öllum aldri, víða um land, í ýmsum störfum og með ólíka fötlun og fjölskyldugerð. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja.
Í þessum þætti segir Katrín Björk Guðjónsdóttir sögu sína. Katrín er staðráðin í að syngja fyrir fólkið sitt á ný þrátt fyrir endurtekin heilablóðföll.
Ný íslensk heimildarmynd í leikstjórn Margrétar Hrafnsdóttur um náttúruhamfarir á Reykjanesskaga. Íbúar Grindavíkur neyddust til að yfirgefa bæinn þegar þar fór að gjósa og allt var gert til að koma í veg fyrir að bærinn færi undir hraun. Framleiðendur: Hlín Jóhannesdóttir og Margrét Hrafnsdóttir.
Ný heimildarmynd í leikstjórn Þórs Freyssonar. Hljómsveitin Nýdönsk undirbýr útgáfutónleika plötunnar Í raunheimum, í æfingabúðum í Borgarfirði. Myndin veitir einstaka innsýn í æfingar og upptökur og samstarf ólíkra manna sem enn er farsælt eftir áratugi. Framleiðsla: Trabant.


Fallegir teiknimyndaþættir um óvenjulega vináttu bjarnarins Ernests og músarinnar Célestine.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt

Stutt innslög frá þeim Jasmín og Jómba þar sem þau tala um tónlist og tónfræði.

Finnlands-sænskir lífsstílsþættir þar sem meðal annars er fjallað um matreiðslu, garðyrkju og föndur.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Heimildarmynd frá 2025 í leikstjórn Yrsu Roca Fannberg. Fjallað er um sólsetur lífsins á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík þar sem tíminn lýtur sínum eigin lögmálum. Yrsa hefur starfað á hjúkrunarheimilinu í fjölda ára og myndað náin tengsl við heimilisfólkið sem jafnframt er viðfangsefni myndarinnar. Myndin er ljóðræn og veitir einstaka innsýn í þetta tímabil lífsins þar sem mennska og kærleikur skín í gegn. Framleiðandi: Hanna Björk Valsdóttir.

Íslensk kvikmynd í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Kórstjóri á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og segir stóriðju í landinu stríð á hendur. Hún gerist skemmdarverkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Íslands. En þegar munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar verður hún að gera upp við sig hvort sé henni mikilvægara, að bjarga einu barni eða bjarga heiminum. Leikstjóri: Benedikt Erlingsson. Aðalhlutverk: Halldóra Geirharðsdóttir, Jóhann Sigurðarson og Jörundur Ragnarsson. Myndin er sýnd á sama tíma á RÚV 2 með enskum texta.

Upptaka frá 35 ára afmælistónleikum Todmobile í Eldborg í Hörpu haustið 2023 þar sem hljómsveitin flutti sína helstu slagara ásamt SinfoniaNord á sannkölluðum stórtónleikum. Stjórn upptöku: Salóme Þorkelsdóttir.

Keppnir í bikarkeppni karla í fótbolta.
Leikur Grindavíkur og Keflavíkur í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.

Keppnir í bikarkeppni karla í fótbolta.
Leikur KR og Vals í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.

Umfjöllun um leiki í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

An Icelandic documentary from 2025 directed by Yrsa Roca Fannberg. The film explores the sunset of life at Grund Nursing Home in Reykjavík. Having worked there for many years, Yrsa has developed deep connections with the residents who are the film's subject. The result is a poetic and unique insight into this stage of existence, where humanity and compassion shine through. Producer: Hanna Björk Valsdóttir.

A choir conductor in her forties decides to save the world - and declares war on heavy industry in Iceland. She becomes a saboteur, ready to sacrifice everything for Mother Earth and the highlands of Iceland. However, when an orphaned girl from Ukraine enters her life, she must decide what is more important to her: saving one child, or saving the whole world.
Director: Benedikt Erlingsson. Starring: Halldóra Geirharðsdóttir, Jóhann Sigurðarson, and Jörundur Ragnarsson.