
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er að koma börnunum sínum í rúmið, þegar klaufska dóttir hans sem kennd er við banana, dettur og býr á sama tíma til vél sem fær hana til að svífa upp í himininn! Eddi verður að gera hið ómögulega, að bjarga henni!
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Orrustan við sæormana geisar. Glötuð sál Guðrúnar kvelur hana og Ormhildur berst við að sameina hópinn. Guðrún ætlar að frysta allt og alla. Ormhildur og allir vinir hennar, nær og fjær, stöðva Guðrúnu með göldrum svo illa orkan yfirgefur hana. Albert og Ormhildur bjóða vinum, vandamönnum og skepnum að vera með í að stofna (SVGKV) SAMTÖK VINA GALDRAKINDA OG VERA og boða nýtt upphaf fyrir alla.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Selma Björnsdóttir, Kolbeinn Tumi Daðason, Regína Ósk Óskarsdóttir og Sigursveinn Þór Árnason.
30 ára ferill Spaugstofunnar og þeirra sem stóðu á bak við hana rakinn í upprifjun á gömlu sjónvarpsefni, viðtölum við mennina á bak við þættina og fjölmarga aðra sem tengdust þeim, birtust í þeim eða voru fórnarlömb þeirra. Umsjón: Gísli Marteinn Baldursson. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Ýmis óvenjuleg málefni krufin út frá skemmtilegu sjónarhorni í nýjum og spennandi þætti þar leitað er svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson.
Árið 2016 voru fimmtíu ár síðan Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar og á þessum fimmtíu árum hefur það sýnt ógrynni af efni allstaðar að af landinu. Í 50 ár eru níu sjónvarpsþættir sem sendir voru út frá vel völdum stöðum á landinu sumarið 2016 þar sem rifjaðar voru upp sögur og svipmyndir af sjónvarpssögu viðkomandi landshluta. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Í þessum þætti heyrum við meðal annars sögu Helgu Sturlaugsdóttur sem vaknaði upp við vondan draum í orðsins fyllstu merkingu fyrir rétt um fjörtíu árum þegar æskuheimilið hennar eyðilagðist í sprengingu. Við rifjum upp Húsafellsmótin þar sem menn lögðu mikið á sig til að lauma áfengi inn á svæðið og hugmyndaflugið náði miklum hæðum. Við sjáum Hvalfjarðargöngin verða til og Akraborgina hverfa, böðum okkur á Langasandi, hittum St. Fransiskussystur í Stykkishólmi og sjáum hvalavöðu strandaða á Rifi. Allt að gerast á Akranesi og nágrenni á sunnudaginn kemur.

Þáttaröð fyrir alla fjölskylduna byggð á samnefndri metsölubók eftir Gunnar Helgason. Jón fer til Vestmannaeyja með liðsfélögum sínum úr Fálkum til að keppa á stærsta og skemmtilegasta fótboltamóti ársins. Draumar hans hafa þó verið slæmir þar sem eldgos og undarlega vondur markmaður eru að trufla hann. Í raunveruleikanum er það þó Ívar, brjálaði boltaþjófurinn, sem er hans helsti óvinur. Samtímis þarf Rósa að berjast fyrir tilverurétti sínum hjá Fylki. Innan vallar eru þau öll andstæðingar en utan vallar þurfa þau að snúa bökum saman og berjast upp á líf eða dauða.
Jón er kominn til Vestmannaeyja með liðsfélögum sínum úr Fálkum til að keppa á stærsta og skemmtilegasta fótboltamóti ársins. Það er aðeins tvennt sem truflar hann: öll eldfjöllin og brjálaði boltaþjófurinn. Rósa berst fyrir tilverurétti sínum hjá Fylki, en þar vantar einmitt einn leikmann.
Þáttaröð um íslenska tónlist í umsjón Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts eru Guðmundur Kristinn Jónsson og Bragi Valdimar Skúlason. Farið er um víðan völl íslensku tónlistarsenunnar og þekktir tónlistarmenn fengnir til að vinna nýtt efni fyrir þættina.
Textað á síðu 888 í Textavarpi.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Brasilíu og Noregs í 16-liða úrslitum á HM karla i fótbolta.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Heimildarþættir sem fjalla um tónlistarmyndbönd nokkurra af stærstu poppstjörnum heims. Rætt er við leikstjóra, danshöfunda, gagnrýnendur og listafólkið sjálft.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Mexíkó og Englands í 16-liða úrslitum á HM karla i fótbolta.