
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Hláturskrímslið er ólíkur öðrum skrímslum. Hann er jafn stór og risaháhýsi og virðist finnast flest allt bráðfyndið. Hann hlær svo hátt að jörðin hristist, hús hrynja og það heyrist í honum til næstu landa. En hann notar að minnsta kosti sólarvörn, það er eitthvað.
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru.
Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir.
Förum í ferðalag í gegnum skóginn og tökum eftir trjánum og dýrunum sem búa þar. Átt þú þér uppáhalds tré?
Íslensk þáttaröð fyrir alla fjölskylduna. Hanna og Baldur eru ósköp venjulegir krakkar í Reykjavík. Lífið tekur stakkaskiptum þegar foreldrar þeirra ákveða að skilja. Leikstjóri: Bragi Þór Hinriksson.Leikarar: Andrea Birna Guðmundsdóttir, Lúkas Emil Johansen, Svandís Dóra Einarsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson. Framleiðsla: Hreyfimyndasmiðjan.
Baldur gerist sífellt einrænni og Hönnu líður æ verr tilfinningalega. Hanna kemst að því að Kristín vinkona hennar hefur lengi vitað af fyrirhuguðum skilnaði foreldra hennar.
Dönsk heimildarþáttaröð um fimm manna fjölskyldu sem flytur í frumskóga Níkaragva. Fjölskyldufaðirinn Glenn býst við að innan fimm ára verði heimshrun og þá verði fólk að geta ræktað eigin mat og séð sér fyrir rafmagni og vatni. Hann vill að börnin þrjú læri að takast á við lífið á nýjum forsendum en þau eiga erfitt með að yfirgefa öruggan hversdagsleikann heima í Danmörku.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til að vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna. Við kynnum okkur málið.
Olíuverð er í hæstu hæðum vegna stríðsins í Íran og eldsneytisverð hefur hækkað skarpt eftir lækkun um áramótin þegar kílómetragjald var tekið upp. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, vill að stjórnvöld grípi inn í miklar verðhækkanir. Hann er gestur Kastljóss í kvöld.
Auk þriggja leikara í leiksýningunni Mömmó í Borgarleikhúsinu, leika hárkollur lykilhlutverk í frásögninni. Vanalega er markmiðið að ekki sjáist að kolla sé kolla, en þannig er það ekki í þetta sinn.
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmars Guðmundsson ræðir við Falasteen Abu Libdeh sem flutti til Íslands frá Palestínu 16 ára gömul og þurfti að glíma við ýmsar hindranir til að geta brotist til mennta hér á landi.
Nýir íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Helga Björg Ingimarsdóttir býr á bænum Höfnum, nyrst á Skaga. Bærinn stendur við ysta haf og er jörðin rík af fuglalífi og sel, sérkennilegum klettamyndunum og náttúrufegurð. Helga Björg segir náttúruna vera ástæðuna fyrir því að hún settist þarna að. Auk þess er náttúrugimsteinn á landareigninni þar sem hún getur setið tímunum saman og hlustað á fuglana og öldugjálfrið. Þá fer Lára með bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard um Hafnir.
Matreiðsluþættir með Kristni Guðmundssyni. Eftir að Kristinn varð pabbi fór hann að elda ofnrétti oftar. Þar sem hann er vanur að fara ótroðnar slóðir eldar hann alla réttina í eldofni sem hann byggði með vinum sínum í Norður-Frakklandi. Dagskrárgerð og framleiðsla: Kristinn Guðmundsson.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld lítum við í matarvörubúðir frá ýmsum heimshornum, við köfum á dýpið á Reyðarfirði, við yljum okkur með veðráttuteppum og förum á sýningu minningaleikhússins á Egilsstöðum.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Ferðaþættir í umsjá útivistarhjónanna Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall þar sem þau ferðast með fólki um ósnortna náttúru Íslands.
Félagarnir Kristján og Kristinn vígðu tæplega 600 kílómetra Öræfaleið síðasta sumar en hún liggur á milli Lónsöræfa fyrir austan og Borgarfjarðar á Vesturlandi. Hér er fylgst með þeim eina dagleið suður undir Langjökli á meðan ferðasagan er enn að gerast. Í síðari hluta þáttarins býr hópur kvenna sig undir að þvera Vatnajökul á skíðum með því að fara í vetrarútilegu í erfiðum aðstæðum.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Trump íhugar að yfirgefa Nato

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Heimurinn býr sig undir orkukreppu eftir að ein mikilvægasta olíuflutningaleið heims, Hormússund, lokaðist í kjölfar innrásar Bandaríkjanna og Ísrael í Íran. Hvaða áhrif gæti olíukreppa haft á Ísland? Við ræðum við Loga Einarsson, settan orkumálaráðherra, og Sigríði Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins.
Nýir kjörkassar leysa gömlu viðarkassana af hólmi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Nýju kassarnir eru úr plasti og eiga að létta kjörstjórnum lífið. Við kíkjum á kassana.
Salka Valka, eins þekktasta bókmenntapersóna Íslands, lifnar við í einleiknum Ástin og dauðinn, sem Unnur Ösp Stefánsdóttir flytur í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Við hittum Unni Ösp.

Íslensk heimildarmynd frá 2011 í leikstjórn Áslaugar Einarsdóttur og Davíðs Alexanders Corno. Rætt er við hóp sjö ára barna, hvaðanæva af landinu, um lífið og tilveruna heima hjá þeim og í skólanum. Ætlunin er að ræða við sama fólk á sjö ára fresti og skrásetja uppvaxtar- og þroskasögu þess. Fyrirmyndin er heimildamyndaserían Seven Up í leikstjórn Michael Apted sem fylgdi sínum hópi í 49 ár. Framleiðandi: Ljósband ehf.
Breskt drama í sex þáttum frá 2025 um húsmóður í Lundúnum sem stofnar næturklúbb í Soho-hverfi við lok seinni heimsstyrjaldar til að framfleyta sér og dætrum sínum. Rekstrinum fylgja tíðir árekstrar við bæði glæpagengi og lögregluna. Aðalhlutverk: Julianne Nicholson, Ian Bonar og Fiona Button. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.

Rómantísk gamanmynd frá 2016 um hina seinheppnu Bridget Jones sem hefur ákveðið að njóta þess að vera einhleyp og einbeita sér að starfsframanum. Þegar hún svo verður óvænt ólétt þarf hún að reyna að komast að því hver faðirinn er án þess að mennina tvo gruni að það sé annar í spilinu. Leikstjóri: Sharon Maguire. Aðalhlutverk: Renée Zellweger, Colin Firth og Patrick Dempsey. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sænskir leiknir heimildarþættir frá 2023. Farið er yfir sögu Svíþjóðar frá ísöld til dagsins í dag. Yfir 300 sérfræðingar komu að gerð þessarar tíu hluta þáttaraðar þar sem sögulegir viðburðir eru endurskapaðir. Sögumaður: Simon J. Berger. Leikstjórar: Niklas Fröberg og Niklas Vidinghoff.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Trump íhugar að yfirgefa Nato