
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Guðrún kemst að því að vandræði þorpsins stafa af afkvæmum urðarkattar. Þorpsbúar safna kettlingunum saman og Ormhildur vill að þeim verði sleppt uppi í fjöllum. Á leiðinni mæta þau mannýgu nauti sem Guðrún ruglar rækilega í ríminu svo það lætur þau vera. Álfur fellst á vopnahlé við Rauð þegar hann kemst að því að þeir eiga sameiginlega andstæðinga í Ormhildi og hópnum hennar.
Gleypti úlfur sólina eða sveif himnadreki yfir og lokaði auganu í stutta stund? Stuttmyndir sem börn frá Vestfjörðum unnu í skapandi smiðjum.
Grunnskólabörn í 5. - 7. bekk alls staðar á Vestfjörðum komu saman vorið 2026 í skapandi smiðjum sem hverfðust um almyrkva á sólu sem var framundan. Þetta mikla undur var skoðað frá sjónarhornum lista, vísinda, þjóðsagna og skuggaleikhúss. Sólmyrkvaleikar er yfirheiti listaverka barna sem urðu til í samsköpun; stuttmyndir með frumsaminni tónlist og sönglög. Verkefnið leiddu hönnunarteymið ÞYKJÓ, tónlistardúóið Siggi&Ingibjörg og Stjörnu-Sævar, fyrir barnamenningarhátíðina Púkann.
„Sólin er björt en tunglið fer fyrir. Um miðjan dag breytast litir. Allt verður silfrað.“
Skuggaleikhús með frumsaminni tónlist eftir börn á miðstigi í grunnskólum Vestfjarða. Stuttmyndin er afrakstur lista- og vísindasmiðja á Sólmyrkvaleikunum vorið 2026.
Kvikmyndun og klipping: Janus Bragi Jakobsson. Listræn stjórn: ÞYKJÓ og Siggi&Ingibjörg.
Talsett Disney-teiknimynd frá 2010 um leikföng sem lifna við þegar eigandi þeirra, Addi, hverfur úr sjónmáli. Viddi, Bósi Ljósár og félagar standa frammi fyrir mikilli óvissu um framtíðina þegar Addi býr sig undir að fara í háskóla. Hvað verður um leikföngin þá?
Íslensk heimildarþáttaröð í sex hlutum þar sem skyggnst er inn í heim tvíbura og sagðar persónulegar sögur. Í þáttunum er fylgst með því líffræðilega undri sem á sér stað þegar tvíburar verða til og þeim sterku tengslum sem virðast fylgja flestum tvíburum út lífið. Hvaða helstu áskoranir bíða tvíbura, búa þeir yfir meiri samkennd en aðrir, hversu samtaka í lífinu eru þeir og hugsa þeir jafnvel eins? Umsjón og framleiðsla: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Eiríkur Ingi Böðvarðsson.
Alexandra Ósk Jónsdóttir og Arnar Hlynur Elliot Magnússon eru að fara takast á við stærsta og mikilvægasta hlutverk sitt á lífsleiðinni, að verða foreldrar. Það er afrek að koma barni í heiminn, hvað þá tveimur í einu. Í þessum þætti er fylgst með tvíburafæðingu og álaginu sem fylgir því að fá lottóvinninginn tveir fyrir einn.
Þáttaröð í tíu hlutum um íslenskar kvikmyndir allt frá fyrri hluta 20. aldar til samtímans. Í hverjum þætti er ákveðið tímabil tekið fyrir, fjallað um kvikmyndir þess tímabils og sýndir valdir hlutar úr þeim. Rætt er við á annað hundrað kvikmyndagerðarmenn, leikara og kvikmyndasérfræðinga um verkin og margvíslega fleti íslenskrar kvikmyndagerðar. Leikstjóri: Ásgrímur Sverrisson.
Íslenskum kvikmyndum fjölgar á seinni hluta fyrsta áratugar þessarar aldar. Margar þeirra má kalla rammíslenskar. Þær gerast flestar í nútímanum en sækja efnivið í sögu og sagnaarf eða skoða samfélagsgerð og samskiptavenjur. Á sama tíma koma fram margar myndir þar sem umheimurinn er áberandi á yýmsa vegu. Því er meðal annars spurt, hvað er íslensk kvikmynd? Fjallað er sérstaklega um kvikmyndir Sólveigar Anspach en auk þess myndirnar Mýrin, Börn, Foreldrar, Skrapp út, Brúðguminn og Kaldaljós.
Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Katrín og Unnsteinn halda áfram að kryfja ýmis óvenjuleg en aðkallandi málefni út frá skemmtilegu sjónarhorni og leita svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson. Framleiðandi: Sævar Guðmundsson.

Krakkarnir bjarga vinum sínum Lofti og Sjón úr svartholinu – eða hvað? Nýjar og dularfullar verur koma í þeirra stað! Nú þurfa krakkarnir að finna hið sanna Loft og hina sönnu Sjón, en leiðin er full af ævintýrum og gleymdum minningum.
Loft og sjón eru föstí svartholi og Áróra leitar leiða til að bjarga þeim.
Kristín og Arnór kynnast dularfullri stelpu sem grunar sögukennarann um eitthvað skuggalegt. Hvað ætli sé í gangi hjá honum Sigurjóni sögukennara?
Leikarar: Kristín Erla Pétursdóttir, Arnór Orri Atlason, Arnþrúður Karen Viktorsdóttir, Agnes Wild og Karl Pálsson. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir og Elvar Egilsson
Addú, Kristín, Arnór og Amma elta Sigurjón sögukennara og finna hann í skólanum hennar Addú. En fljótlega lenda þau í miklum vandræðum.
Sigyn Blöndal fær fluggáfaða krakka til að hjálpa sér að leysa ráðgátur um land allt.
Leiðangurinn er í Vestmannaeyjum í dag og við förum upp á nýjasta eldfjallið í eyjunni, Eldfell. Það er ýmislegt sem gengur á en tekst stelpunum að finna réttan stað græða hjartað í eldfjallið aftur?
Þáttakendur:
Alexandra Ósk Viktorsdóttir
Anna Sif Sigurjónsdóttir
Bolli og Bjalla lýsa hörkuspennandi íþróttakeppni þar sem krakkar keppast við að klára allskonar íþróttaþrautir.
Þetta er seinasti þátturinn af íþróttatíma sem haldinn er í skólanum hjá Bjarma en liðið sem sigrar í þessum þætti heldur áfram í úrslitaþáttinn, ásamt öðrum sigurvegurum.
Íþróttatími er æsispennandi keppni á milli tveggja liða sem mætast í þrem þrautum: Svampasundi, Buxnaflækju og Kúlustigakasti.
Liðin keppast við að safna stigum og annað liðið stendur upp úr sem sigurvegari.
Í þessum þætti mætast liðin Svart og hvítt og Playstation gengið
Keppendur eru:
Indíana Mist Káradóttir
Mía Alexandra Friðriksdóttir
Eyþór Örn Gunnarsson
Aron Leví Arnþórsson
Þáttaröð þar sem heimur íslenskrar sögu og sagna er kannaður með því að skoða muni sem tengjast sérstökum atburðum í sögu þjóðarinnar. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason. Framleiðsla: Republik.
Í Skógræktarstöðinni á Hallormsstað er ferðaklósett sem talið er tengjast Bítlinum Ringo Starr og hefur það verið geymt á staðnum í fjóra áratugi. Við reynum að komast að sannleikanum um klósettið en fræðumst í leiðinni um útihátíðina sem Stuðmenn héldu í Atlavík 1984.
Í safni sjónvarpsins er að finna efni allt frá stofnun þess en sjónvarpið hefur fylgt þjóðinni í sextíu ár. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir demba sér á kaf í safnkostinn og sýna þjóðinni valda gullmola. Áhugaverð, forvitnileg og óvenjuleg brot úr sjónvarpssögunni sem sum hafa nýlega verið gerð aðgengileg. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir skoða stór og smá björgunarafrek sem fest hafa verið á filmu og finna má í safni sjónvarpsins.

Íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.
Maríanna Friðjónsdóttir er uppfull af ævintýraþrá og lífskrafti. Síðustu tíu ár hefur hún haft vetrarsetu í litlum bæ í Portúgal þar sem hún þræðir matarmarkaði enda finnst henni fátt skemmtilegra en að elda. Maríanna hefur fengist við ýmislegt í tímans rás. Hún sat á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn og vann við allar hliðar sjónvarpsframleiðslu bæði hér á landi og í Danmörku. Hún er óhrædd við áskoranir á gamans aldri og hefur einsett sér að læra eitthvað nýtt á hverjum degi.
Belgískir spennuþættir frá 2025. Árið er 1936 og hópur súrrealista, þar á meðal ungur Salvador Dalí og René Magritte, kemur saman á ensku sveitasetri. Þegar morð er framið liggja allir undir grun. Aðalhlutverk: Pierre Gervais, Stephen Tompkinson og Donna Banya. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Sálfræðidrama frá 2021 eftir Apichatpong Weerasethakul. Skosk kona sem dvelur hjá systur sinni í Kólumbíu vaknar á hverjum morgni við óútskýrðan, háværan hvell sem hún ein virðist heyra. Hún einsetur sér að komast að orsökum hávaðans og setur af stað atburðarás sem dregur hana að mörkum hins mannlega. Aðalhlutverk: Tilda Swinton, Agnes Brekke og Daniel Giménez Cacho.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Kosningum lokið

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Kosningum lokið