Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Í Miðstöðinni að þessu sinni förum við í stúdíó 12 með GusGus sem ætla að halda risatónleika næstu helgi. Hljómsveitin er komin á fertugsaldurinn en hefur aldrei verið sprækari.
Svo dýfum við tánum í heim raunveruleikaþáttanna sem njóta mikilla vinsælda hér á landi. Hvað er helst og heitast í þessum heimi? Því svara Birta Líf og Elín Stefáns.
Í lok þáttar förum við með Bríeti aftur í tímann. Fyrir 10 árum var hún 17 ára með stóra drauma og spilaði í hverri viku á Íslenska barnum. Við rifjum þennan tíma upp og fáum hana til að finna ræturnar og taka lagið þar sem þetta byrjaði allt.
