Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Íslendingar ganga að kjörborðinu 29. ágúst til að greiða atkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta varð ljóst eftir atkvæðagreiðslu á Alþingi síðdegis. Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra var samþykkt með 34 atkvæðum gegn 8 og 14 sátu hjá. Gestir Kastljós eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar og Sigríður Á. Andersen þingflokksformaður Miðflokksins.
Einn helsti sérfræðingur Bandaríkjanna um kyrkingartak segir nauðsynlegt að setja sérstök lög um kyrkingar hér á landi. Ekki sé nógu markvisst að þær tilheyri almennum lögum um líkamsárásir. Rætt er við Gael Strack í lok þáttar.
Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Bein útsending frá úrslitum spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Andri Freyr Viðarsson skoðar hina hliðina á hversdagsleikanum. Hann heimsækir forvitnilega staði, mætir á áhugaverð mannamót, spjallar við sérstakar týpur og prófar óvenjuleg störf. Ekkert er Andra óviðkomandi á flandri sínu um höfuðborgina; málaðir miðaldra rokkarar, falið kúluspilasafn, moskva í miðbænum, skeggjuð kona, fitulaust brúnt fólk, háskólanemar í þykjó, samkynhneigðir söngfuglar og fleira. Dagskrárgerð: Kristófer Dignus. Framleiðandi: Stórveldið ehf.
Andri fær þann heiður að vera gestasöngvari á æfingu hjá Hinsegin kórnum. Hann mætir svo í Laugardalshöll, á undanúrslit í bikarkeppni í handbolta, og lætur gamminn geysa sem vallarþulur. Á Granda er æfingarhúsnæði dauðarokkshljómsveitarinnar Angist en í henni eru tveir strákar og tvær stelpur. Andri fer og heimsækir Abba þungarokksins. Í lok þáttarins fer Andri svo í starfskynningu til síðasta móhíkanans í vídeóleigubransanum, Gunna í Laugarsásvideó.
Norskir þættir um líkamstjáningu þar sem teknar eru fyrir ýmsar aðstæður sem fólk verður gjarnan óöruggt í. Fjallað er um hvernig hægt er að vinna með líkamstjáningu til að virka öruggari til dæmis á stefnumótum og í atvinnuviðtölum.
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Í Miðstöðinni að þessu sinni förum við í stúdíó 12 með GusGus sem ætla að halda risatónleika næstu helgi. Hljómsveitin er komin á fertugsaldurinn en hefur aldrei verið sprækari.
Svo dýfum við tánum í heim raunveruleikaþáttanna sem njóta mikilla vinsælda hér á landi. Hvað er helst og heitast í þessum heimi? Því svara Birta Líf og Elín Stefáns.
Í lok þáttar förum við með Bríeti aftur í tímann. Fyrir 10 árum var hún 17 ára með stóra drauma og spilaði í hverri viku á Íslenska barnum. Við rifjum þennan tíma upp og fáum hana til að finna ræturnar og taka lagið þar sem þetta byrjaði allt.

Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Matilda er metnaðarfullur námsmaður og vill standa sig vel í skólanum. Hana dreymir líka um gott félagslíf, að skemmta sér jafn mikið og vinsælu jafnaldrar hennar - en hvernig fer hún að því? Hún pantar klón af sér á dularfullri vefsíðu og þarf skyndilega að takast á við tvífara sem tekur yfir líf hennar.
Eitthvað fer úrskeiðis og kerfið bregst.
Ný íslensk grínþáttaröð eftir Arnór Björnsson, Óla Gunnar Gunnarsson og Vigdísi Hafliðadóttur. Þrjú ungmenni takast á við þær áskorarnir sem fylgja þrítugsaldrinum; háskólann, vinnumarkaðinn, sambandsdrauga, rappara og glataða æskudrauma. Hér mætir íslenskur veruleiki óbeisluðu ímyndunarafli. Þættirnir skarta sex frumsömdum lögum eftir FLOTT. Aðalhlutverk: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson og Vigdís Hafliðadóttir. Leikstjóri: Kristófer Dignus. Framleiðsla: Kontent.
Diljá verður fullorðin? Janus verður fullorðinn? Teitur verður fullorðinn?
Nýir heimildarþættir um Bubba Morthens þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Rætt er við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Sýnt er áður óséð myndefni og upptökur. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson. Leikstjórn: Þór Freysson.
Breskir leiknir þættir frá 2025. Evie og Noa eru forfallnir kvikmyndanördar sem fá útrás fyrir áhugamálið í vikulegum kvikmyndaklúbbi þar til að óvænt flétta kemur klúbbnum í uppnám. Aðalhlutverk: Aimee Lou Wood, Nabhaan Rizwan og Liv Hill.
Rómantísk gamanmynd frá 2019 um hundinn Enzo sem fylgir eiganda sínum, kappakstursmanninum Denny, hvert sem hann fer. Enzo áttar sig á því að hægt er að nota sömu aðferðir til að öðlast velgengni í daglegu lífi og á kappakstursbrautinni. Leikstjóri: Simon Curtis. Aðalhlutverk: Kevin Costner, Milo Ventimiglia og Amanda Seyfried.
Íslensk spennumynd frá 2018. Bræðurnir Erik og Atli eiga báðir við fjárhagsvanda að stríða af ólíkum ástæðum. Saman grípa þeir til þess ráðs að smygla dópi til landsins. Erik skipuleggur verkefnið í þaula og allt virðist ætla að ganga upp, en óvænt atvik setur strik í reikninginn. Leikstjóri: Börkur Sigurþórsson. Aðalhlutverk: Gísli Örn Garðarsson, Baltasar Breki Baltasarsson, Anna Próchniak og Marijana Jankovic. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
An Icelandic comedy series by Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson and Vigdís Hafliðadóttir. Three young adults navigate the challenges of their twenties: university life, the job market, ghosts of past relationships and faded childhood dreams. The series features six original songs by the band FLOTT. Starring: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson and Vigdís Hafliðadóttir. Director: Kristófer Dignus. Production: Kontent.