Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Fjöldi óseldra íbúða er í sögulegum hæðum og hefur aukist um 40 prósent milli ára. Sigurður Hannesson, framkvæmastjóri Samtaka iðnaðarins, óttast að vatnaskil séu að verða í íslenskum byggingariðnaði. Við förum yfir stöðuna með honum og Moniku Hjálmtýsdóttur, formanni Félags fasteignasala.
Málefni fatlaðs fólks eru eitt mikilvægasta verkefni sveitarfélaga, þar á meðal að tryggja öruggt og gott aðgengi. Við hittum mann í Múlaþingi sem notar hjólastól og segir enn verið að byggja íbúðir með of háum þröskuldum og það sé undir hælinn lagt hvort brugðist sé við óskum um umbætur.
Við kynnumst líka einum afkastamesta plastplokkara landsins, að minnsta kosti í flokki ferfætlinga - hafnfirska kettinum Ástríki.
