11:30
Vikan með Gísla Marteini
10. apríl 2026

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.

Gestir þáttarins eru Glódís Perla Viggósdóttir, Patrekur Jaime og Sóli Hólm.

Þátturinn hefst á flutningi Memfismafíunnar á laginu Ég syng fyrir þig til heiðurs Björgvini Halldórssyni.

Vigdís Hafliðadóttir og félagar flytja vorlega vísu.

Berglind Festival ræðir við oddvitana í Reykjavík undir sæng.

FLOTT og Arnór og Óli Gunnar enda þáttinn á lagasyrpu úr nýju þáttunum 20 og eitthvað.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst.
e
Endursýnt.
,