Íslenskir heimildarþættir um uppgang hatursorðræðu á Íslandi og bakslagið sem orðið hefur í baráttu ýmissa minnihlutahópa á síðustu misserum. Leitast er við að svara spurningunni um hvernig bakslagið fór af stað, hvaðan hatrið stafar og hvaða leið er út úr þessari stöðu. Rætt er við sérfræðinga, stjórnmálafólk og þau sem hafa orðið fyrir barðinu á hatursorðræðu auk þess sem ljósi er varpað á aukið aðgengi ungs fólks að hatri í gegnum samfélagsmiðla. Umsjón: Ingileif Friðriksdóttir. Leikstjórn: Hrafn Jónsson. Framleiðsla: Ketchup Creative.
Matreiðsluþættir þar sem Solla Eiríks heimsækir konur sem hafa áratugareynslu af matargerð. Hún kíkir í uppskriftabækur þeirra og lærir að elda rétti sem þær hafa matreitt á sinn einstaka hátt í fjölda ára. Í framhaldinu býður hún konunum heim til sín og endurgerir uppskriftirnar með aðstoð þeirra, en skiptir út dýraafurðum fyrir hráefni úr náttúrunni. Leikstjóri: Sunneva Ása Weisshappel. Framleiðsla: RVK Studios.
Uppskriftirnar má finna hér: https://www.ruv.is/frettir/tag/uppskriftabokin
Solla Eiríks heimsækir Ingu Backman sem kennir okkur að elda kindakæfu og rísmjölsgraut. Einnig hittir hún Öldu Lóu sápugerðarkonu sem kennir okkur að gera rósavatn.
Þriðja þáttaröðin um hringfarann Kristján Gíslason og ævintýraleg ferðalög hans um heiminn á mótorhjóli. Árið 2019 fór hann niður Afríku og á ferðalaginu fær hann að reyna allt frá borgarastríði til stórbrotinnar náttúru, kynnist einstökum ættbálkasamfélögum og kemst í kynni við einhver hættulegustu dýr heims.
Í fjórða þætti fer Kristján Gíslason um Kibera, stærsta fátækrahverfi Afríku. Hann hittir líka Íslendinga sem hafa breytt lífi þúsunda afrískra barna til hins betra. Þá fer hann um stórbrotna náttúru Afríku og einhver mögnuðustu dýr heims verða á vegi hans.
Þættir um börn og ungmenni sem eiga annað móðurmál en íslensku og hafa hlotið Íslenskuverðlaun unga fólksins. Dagskrárgerð og umsjón: Hafsteinn Vilhelmsson.
Anya fæddist á Íslandi árið 2009. Hún ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur hjá foreldrum sínum og yngri bróður. Hún lærði hindí og íslensku á sama tíma og því er óhætt að segja að hún eigi þau bæði að móðurmáli. Anya segir að það sé mikilvægt að læra íslensku. Hún segir okkur líka frá alþjóðadeildinni í Landakotsskóla og stærðfræðivalinu.

Litla Ló býr með Kisu, bróður sínum Húgó, foreldrum sínum - og líka álfinum Búa sem býr í holu í veggnum. Búi er algjör töframaður og á hverjum degi býður hann Litlu Ló og Kisu í nýtt ævintýri úti í náttúrunni.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.

Stutt innslög frá þeim Jasmín og Jómba þar sem þau tala um tónlist og tónfræði.

Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.

Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.

Fjórða þáttaröðin um vinalega hundinn Sám og krílin sem vinna sér inn merki á leikskólanum hans.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Símalaus mánudagur. Krakkafréttir dagsins: 1. Símalausir grunnskólar landsins 2. Dagur rauðhærðra Lokaskot: Slegið á gamla mátann á Árbæjarsafni. Ari Páll Karlsson tekur á móti ykkur í dag.
Íslensk heimildarþáttaröð í fjórum þáttum. Þótt meirihluti landsmanna búi í þéttbýli býr sumt fólk á stöðum þar sem náttúran hefur meiri áhrif á líf þess en gengur og gerist. Í þessari þáttaröð greinir fólk frá ýmsum stöðum á landinu frá ástríðu sinni fyrir því, hvers vegna það kýs að búa utan þéttbýlis og hvað veldur því að það vill hvergi annars staðar búa. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon og Lára Ómarsdóttir.
Baldur Rafnsson var orðinn leiður á lífinu í höfuðborginni og langaði að verja meiri tíma með fjölskyldunni. Þegar færi gafst festi hann ásamt konu sinni kaup á jörðinni Vattarnesi og fjölskyldan fluttist þangað búferlum. Innan um fugla, fiska, sauðfé og náttúrudýrð Skrúðs líður honum vel. Skrúður er griðastaður hans, eyjan hans.

Íþróttafréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra kynnti í dag aðgerðir til að þrýsta á Ísrael vegna innrásarinnar á Gasa. Meðal aðgerða er að fríverslunarsamningur við Ísrael verður ekki uppfærður, vörur frá hernumdum svæðum Ísraela verða merktar sérstaklega og farið verður fram á komubann yfir tveimur ísraelskum ráðherrum. Rætt er við ráðherra í þættinum.
Norðmenn gengu að kjörborðinu í dag. Við heyrðum í Agnesi Árnadóttur fyrrverandi formanni ungra Evrópusinna í Noregi fyrr í dag um helstu áherslumál kosninganna og hvaða verkefni bíða nýrrar ríkisstjórnar þar í landi.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Þingmennirnir Sigríður Á. Andersen, Sigurður Ingi Jóhannsson, Pawel Bartoszek og Guðmundur Ari Sigurjónsson ræða þvingunaraðgerðir stjórnvalda gegn Ísrael og fjárlagafrumvarp næsta árs.
Þýsk leikin þáttaröð um líf og starf ljósmæðranna Nalan, Önnu og Gretu sem takast á við óvæntar aðstæður á hverjum degi. Aðalhlutverk: Mariam Hage, Anna Schudt og Lydia Lehmann. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Heimildarmynd um parið Mariu og Nik sem lifa sjálfbæru lífi ásamt börnum sínum fjórum á sveitabæ í óbyggðum Noregs þar sem frelsið ræður ríkjum. Veröld þeirra hrynur Þegar Maria fellur frá. Nik og börnin neyðast til að flytja og reyna að aðlagast kröfum nútímasamfélags. Leikstjóri: Silje Evensmo Jacobsen.

Norsk leikin þáttaröð frá 2024 um ástarsamband kanadíska tónlistarmannsins Leonards Cohen og hinnar norsku Marianne Ihlen á sjöunda áratug síðustu aldar. Aðalhlutverk: Alex Wolff, Thea Sofie Loch Næss og Anna Torv. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Símalaus mánudagur. Krakkafréttir dagsins: 1. Símalausir grunnskólar landsins 2. Dagur rauðhærðra Lokaskot: Slegið á gamla mátann á Árbæjarsafni. Ari Páll Karlsson tekur á móti ykkur í dag.