18:20
Andrar á flandri
Skotland

Þáttaröð í sex hlutum þar sem nafnarnir og sjónvarpsmennirnir Andri Freyr Viðarsson úr þáttunum Andri á flandri og Andri Freyr Hilmarsson úr Með okkar augum leggja land undir fót og er ferðinni heitið til Bretlandseyja. Þar freista þeir þess að hitta átrúnaðargoð Andra Freys Hilmarssonar, Mr. Bean. Á meðan Andri Freyr Viðarsson reynir að komast í samband við leikarann Rowan Atkinson nota nafnarnir tímann og skoða sig um á Bretlandseyjum.
Í Skotlandi fara nafnarnir í siglingu á Loch Ness þar sem þeir reyna að finna skrímslið fræga. Auk þess týnast þeir í risavöxnu völundarhúsi, nudda nefið á Greyfriars Bobby í Edinborg, skoða safn þar sem ruglað er í skilningarvitunum og heimsækja minnismerki um Braveheart.
Er aðgengilegt til 10. júlí 2026.
Lengd: 26 mín.
e
Dagskrárliðurinn er textaður.