19:35
Kastljós
Lýðheilsa, Torgið og hlaðvarpið Draugar fortíðar

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Ísland er ein langlífasta þjóð í heimi - og líka í hópi þeirra hamingjusömustu. En langlífinu fylgja ekki aukin lífsgæði, því við erum líka í hópi þjóða þar sem lífsstílssjúkdómar eru í mikilli ísókn og notkun þunglyndislyfja er óvíða jafn mikil og hér. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í heilsuhagfræð við Háskóla Íslands, og Axel Finnur Sigurðsson, hjartalæknir ræddu þversagnir allsnægtalífsins í Kastljósi.

Á Torginu á þriðjudag verður rætt um þjóðaröryggi og áfallaþol, hvað felist í þessum orðum og hvernig við Íslendingar stöndum að vígi. Við fáum nasasjón af því.

Draugar fortíðar nefnist eitt vinsælasta hlaðvarp landsins en þar eru eru sögulegir atburðir raktir í vinalegu spjalli þeirra Flosa Þorgeirssonar og Baldurs Ragnarssonar. Fortíðardraugarnir eru nú á hringferð um landið og Kastljós tók þá tali.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
Bein útsending.
,