11:30
Víti í Vestmannaeyjum - Sagan öll
Víti í Vestmannaeyjum - Sagan öll

Þáttaröð fyrir alla fjölskylduna byggð á samnefndri metsölubók eftir Gunnar Helgason. Jón fer til Vestmannaeyja með liðsfélögum sínum úr Fálkum til að keppa á stærsta og skemmtilegasta fótboltamóti ársins. Draumar hans hafa þó verið slæmir þar sem eldgos og undarlega vondur markmaður eru að trufla hann. Í raunveruleikanum er það þó Ívar, brjálaði boltaþjófurinn, sem er hans helsti óvinur. Samtímis þarf Rósa að berjast fyrir tilverurétti sínum hjá Fylki. Innan vallar eru þau öll andstæðingar en utan vallar þurfa þau að snúa bökum saman og berjast upp á líf eða dauða.

Fálkarnir eru komnir í 16 liða úrslit svo nú eru allir leikir úrslitaleikir. Á sama tíma þarf Jón að hjálpa Ívari í baráttu upp á líf og dauða.

Var aðgengilegt til 11. apríl 2024.
Lengd: 21 mín.
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.
e
Endursýnt.
Dagskrárliður er textaður.
,