14:00
Gettu betur 2005
Borgarholtsskóli - Menntaskólinn við Hamrahlíð

Spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, hefur um árabil verið með vinsælasta sjónvarpsefni á landinu, enda fer þar saman létt skemmtun og æsispennandi keppni. Nú er lokið forkeppni á Rás 2 með þátttöku liða frá 28 framhaldsskólum en aðeins átta lið standa eftir þegar sjónvarpshluti keppninnar hefst.

Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson, spurningahöfundur og dómari Stefán Pálsson og Andrés Indriðason annast dagskrárgerð og stjórnar útsendingu.

Var aðgengilegt til 27. desember 2023.
Lengd: 1 klst. 3 mín.
e
Endursýnt.
,