Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Margir bændur róa nú lífróður og mögulegt fjöldagjaldþrot er framundan grípi stjórnvöld ekki til aðgerða að sögn bænda. Við ræðum þetta við Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra í kvöld og einnig um samgöngusáttmála og borgarlínu, þar sem tímalína verkefnisins er löngu úrelt og fjárhagsáætlun stenst enga skoðun.
Það vakti óhug þegar kveikt var í bíl rannsóknarlögreglukonu í Reykjavík fyrir um mánuði. Málið hefur verið rannsakað sem hefndaraðgerð og er sagt tengjast skipulagðri glæpastarfsemi. Við ræddum við yfirmann greiningardeildar Ríkislögreglustjóra.
Íslendingar geta gert ríkar kröfur til fiskeldisfyrirtækja enda hafi þau á fáa aðra staði að sækja að mati norsks blaðamanns. Ný bók sem hann skrifaði sýni vel að Fiskeldisfyrirtæki geri ávallt minna úr mögulegum vandamálum en þau komi alltaf upp að lokum.

Spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, hefur um árabil verið með vinsælasta sjónvarpsefni á landinu, enda fer þar saman létt skemmtun og æsispennandi keppni. Nú er lokið forkeppni á Rás 2 með þátttöku liða frá 28 framhaldsskólum en aðeins átta lið standa eftir þegar sjónvarpshluti keppninnar hefst.
Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson, spurningahöfundur og dómari Stefán Pálsson og Andrés Indriðason annast dagskrárgerð og stjórnar útsendingu.

Hemmi Gunn og Þórhallur Gunnarsson rifja upp gamla tíma og kynna á ný gesti sem slógu í gegn í þáttum Hemma á sínum tíma.
Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.

Dönsk heimildarþáttaröð um áhrif heimsfaraldurs af völdum COVID-19 á lífsviðurværi fólks víða um heim. Í þáttunum kynnumst við meðal annars nuddurum á ströndum Taílands sem skyndilega urðu mannlausar og norskum hóteleiganda sem þarf að endurskipuleggja allan rekstur sinn og taka erfiðar ákvarðanir.
Gisle fær hnút í magann þegar kærastinn hans tekur í höndina á honum á almannafæri. Í þessari heimildarþáttaröð frá NRK fer hann um ókunnar slóðir í von um að fá svör við spurningum sínum. Hvers vegna er það ennþá erfitt að vera samkynhneigður í Noregi árið 2017? Og nær Gisle að komast yfir það að skammast sín fyrir að vera „öðruvísi“?

Sætabrauðsdrengurinn og ferðalangurinn Tobias Hamann-Pedersen leggur land undir fót og kannar köku- og sætabrauðsmenningu annarra landa. e.
Sætabrauðsdrengurinn og ferðalangurinn Tobias Hamann-Pedersen leggur land undir fót og kannar köku- og sætabrauðsmenningu annarra landa.
Í þessum þætti liggur leiðin til eyjunnar Isle of Skye í Skotlandi þar sem hrjúf náttúra og ekta viskí veita kökubakstri Tobiasar mikinn innblástur.
Þættir frá 2012-2013. Fjallað er um leiklist, kvikmyndir og myndlist með upplýsandi og gagnrýnum hætti. Einnig er farið yfir feril einstakra listamanna. Umsjónarmenn eru Guðmundur Oddur Magnússon, Vera Sölvadóttir, Símon Birgisson og Sigríður Pétursdóttir. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson og Kolbrún Vaka Helgadóttir.


Fótboltabaráttan heldur áfram og keppast Jamie og félagar um að gera liðið sitt sem sterkast. En með nýjum aðstoðarþjálfara og nýjum liðsmönnum koma ný átök. Bæði á vellinum og utan hans.

Við höldum áfram að kynnast matarmenningu heimsins. Fleiri krakkar fá vini sína í heimsókn og elda fyrir þá mat frá heimalandi sínu.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Fréttir á einföldu og auðskildu máli.
Krakkafréttir dagsins: 1. Nýr sauðalitur í Lóni 2. Frystihús verður menningarhús á Breiðdalsvík 3. Rækta grænmeti utandyra í Þingeyjarsveit
Umsjón: Kolbrún María Másdóttir

Hver eru uppáhalds íslensku lögin þín úr ásnum? Þættir frá 2023 sem gerðir voru í tilefni 40 ára afmælis Rásar 2.

Íþróttafréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Fjölmiðlar um allan heim standa frammi fyrir ýmsum vandamálum svo sem minnkandi áhorfi, áhuga og tekjum. Þeir gegna hins vegar svo mikilvægu hlutverki að það verður að leysa þennan vanda, að mati Ingibjargar Þórðardóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá CNN og aðalritstjóra hjá BBC. Ingibjörg er gestur Kastljóss.
Svo kölluð ofurhlaup verða sífellt vinsælli á Íslandi og æ fleiri bætast í hóp þeirra sem hafa hlaupið meira en hundrað kílómetra í einu hlaupi. Færri hafa þó afrekað að klára 350 kílómetra fjallahlaup eins og þeir Sigurður og Gunnar gerðu á dögunum. Við hittum þá í Heiðmörk.
Hvað kostar að fara í bíó og leikhús nú til dags og hversu dýrara er það nú miðað við fyrir áratug? Við rýndum í miðaverð í hinum vikulegu Menningarfréttum, kynntum okkur líka upprennandi kvikmyndagerðarmann og litum á kápu á nýútkominni plötu, sem er sláandi lík umslagi af nýlegri plötu Víkings Heiðars.

Bresk heimildarmynd í tveimur hlutum um svefn. Hvers vegna eiga sumir erfitt með svefn og hvernig er hægt að bæta hann?

Önnur þáttaröð írsku spennuþáttanna um Val Alhern og fjölskyldu. Val er enn að jafna sig eftir skyndilegt andlát eiginmanns síns þegar óvæntur gestur bankar upp á og líf fjölskyldunnar flækist enn frekar. Aðalhlutverk: Dervla Kirwan, Gemma-Leah Devereux og Nimah Walsh. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Breskir dramaþættir frá 2021. Patrick Sumner, fyrrum herlæknir sem fallið hefur í ónáð, ætlar sér að snúa við blaðinu og ræður sig til vinnu á hvalveiðiskipi sem stefnir á norðurhjara. Á ferðalaginu þarf hann ekki einungis að berjast fyrir mannorði sínu, heldur líka lífi sínu. Aðalhlutverk: Jack O'Connell, Colin Farrell og Sam Spruell. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Fimmta og síðasta þáttaröð þessara ævintýralegu spennuþátta sem gerast á Englandi á síðari hluta níundu aldar. Stríðsmaðurinn Uhtred er staðráðinn í að endurheimta ríki sitt en hann er ekki sá eini sem ágirnist það. Aðalhlutverk: Alexander Dreymon, Eliza Butterworth og Arnas Fedaravicius. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Útvarpsþing Ríkisútvarpsins var haldið fimmtudaginn 28. september. Yfirskriftin var RÚV í samfélaginu.
Lögð var áhersla á hlutverk fjölmiðla í almannaþágu, helstu áskoranir, samfélagsumræðu og lýðræðisþróun.
Ingibjörg Þórðardóttir, fyrrum framkvæmdastjóri hjá CNN og aðalritstjóri hjá BBC kynnir verkefnið News Futures 2035.
Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor í fjölmiðlafræði við HÍ fjallar meðal annars um helstu rannsóknir um stöðu mála í upplýsingaheimum.
Liz Corbin, yfirmaður fréttamála hjá EBU, fjallar um ábyrgð fjölmiðla í almannaþágu á tímum upplýsingaóreiðu.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Fréttir á einföldu og auðskildu máli.
Krakkafréttir dagsins: 1. Nýr sauðalitur í Lóni 2. Frystihús verður menningarhús á Breiðdalsvík 3. Rækta grænmeti utandyra í Þingeyjarsveit
Umsjón: Kolbrún María Másdóttir