Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Gott kvöld og velkomin í Kastljós. Það gefur á ríkisstjórnarbátinn þessa dagana eftir yfirlýsingar ráðherra sjálfstæðisflokksins í gær um útlendingamál og ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra í morgun um tímabundið bann við hvalveiðum. Til að ræða þá ákvörðun og stjórnarsamstarfið mættu þeir Teitur Björn Einarsson, þingmaður sjálfstæðisflokksins, og Orri Páll Jóhansson, þingflokksformaður VG í þáttinn.
Verksmiðjan á Hjalteyri var heimsótt en þar stendur þessa dagana yfir sýning Sigurðar Guðjónssonar myndlistarmanns.
