Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Gott kvöld og velkomin í Kastljós. Það gefur á ríkisstjórnarbátinn þessa dagana eftir yfirlýsingar ráðherra sjálfstæðisflokksins í gær um útlendingamál og ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra í morgun um tímabundið bann við hvalveiðum. Til að ræða þá ákvörðun og stjórnarsamstarfið mættu þeir Teitur Björn Einarsson, þingmaður sjálfstæðisflokksins, og Orri Páll Jóhansson, þingflokksformaður VG í þáttinn.
Verksmiðjan á Hjalteyri var heimsótt en þar stendur þessa dagana yfir sýning Sigurðar Guðjónssonar myndlistarmanns.
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1994. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ólafur B. Guðnason. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Verzlunarskóla Íslands og Framhaldsskólans á Húsavík. Lið Verzlunarskóla Íslands skipa Hafþór Hafliðason, Haukur Eggertsson og Jón Sigurðsson. Lið Framhaldsskólans á Húsavík skipa Böðvar Jónsson, Álfhildur Eiríksdóttir og Elva Guðmundsdóttir.
Popppunktur frá árinu 2011. Í þáttunum takast íslenskar hljómsveitir á í æsandi spurningaleik, þar sem gáfur og viska, ásamt snerpu, atgervi og heppni ráða niðurstöðunni - já og tónlistarhæfileikar. Sextán hljómsveitir taka þátt í keppninni að þessu sinni. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Aukaþáttur fyrir úrslitakeppnina. Í þetta sinn mætast leikhóparnir Spaugstofan og Vesturport.
Valinkunnir tónlistarmenn flytja nokkur laga sinna að viðstöddum áheyrendum í myndveri RÚV. Stjórn upptöku: Jón Egill Bergþórsson.
Söngvaskáldið Sóley flytur nokkur laga sinna.
Tónlistarþáttur frá 1988 þar sem fjallað er um innlend og erlend dægurlög. Umsjón: Jón Ólafsson, Steingrímur S. Ólafsson, Stefán Hilmarsson og Anna Björk Birgisdóttir. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Fjöldi söngvara og hljómsveita flytur lög íslenskra lagahöfunda sem gáfu tóninn í íslenskri dægurtónlist á öldinni sem leið. Rætt er við nokkra þeirra og einnig höfunda texta og söngvara. Dagskrárefnið er úr safni RÚV. Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Þriðja serían af vinalega hundinum Sámi og krílunum sem vinna sér inn merki á leikskólanum hans.
Símon er hress og skemmtileg kanína sem tekst á við alls kyns áskoranir og lærir af mistökum sínum.
Rebekka er ung stúlka sem er að læra á lífið, skólann og tilveruna. Örvar er græn veira sem lenti hjá mannfólkinu. Saman eru þau ótrúlegt teymi.
Ólivía er sniðug svínastelpa sem tæklar hversdaginn með frumlegum leiðum. Hún dettur gjarnan í dagdrauma og hefur að auki sett sér ýmsar sniðugar lífsreglur.
Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.
Mörgæsirnar Haddi og Bibbi haga sínu lífi eftir F-unum þremur. Fjör, fiskur og félagsskapur.
Krúttlegir og skemmtilegir þættir þar sem er fylgst með ungum dýrum þar sem þau leika sér og læra á lífið og tilveruna í faðmi fjölskyldunnar.
Vikinglottó-útdráttur vikunnar.
Íþróttafréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Málefni flóttafólks hafa verið í brennidepli í vikunni. Ágreiningur er um málið í ríkisstjórn. Dómsmálaráðherra segir móttökukerfið komið að þolmörkum en fulltrúar Vg eru ósammála. Bæjarstjórarnir í Reykjanesbæ og Hafnarfirði segja bæjarfélög þeirra ekki geta tekið á móti fleira fólki. Kristjana Fenger, lögfræðingur hjá Rauða krossinum á Íslandi, var gestur Kastljóss.
Hvað ætli peningar séu stór sneið af heildarhamingju okkar? Því var svarað á dögunum á ráðstefnunni Wellbeing Economy Forum í Hörpu þar sem einn helsti sérfræðingur heims í velsæld og hamingju, Sir Richard Layard tók til máls. Við ræddum við hann um hvað skiptir mestu máli í lífinu.
Önnur þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Fjallssel, Hraun, Langholtspart, Mið-Kárastaði, Núpsstað og Selstaði. Umsjón: Guðni Kolbeinsson. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Farið er á Suðurlandsundirlendið, í Flóann, að bænum Langholtsparti. Þar bjuggu síðast öndvegishjónin Sveinn Jónsson og Eyrún Guðjónsdóttir.
Sígildir breskar teiknimyndir um ævintýri hins seinheppna herra Bean.
Sænskir spennuþættir um hermanninn Max Anger sem hefur sagt skilið við sænska herinn og fundið ástina með rússneskri samstarfskonu sinni, Pashie. Eftir að Pashie hverfur sporlaust þarf Max að leggja líf sitt í hættu til að leita hennar. Aðalhlutverk: Adam Lundgren, Johan Rheborg og Malin Crépin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Heimildarmynd þar sem farið er yfir 50 ára sögu tónlistarhátíðarinnar Glastonbury. Rætt er við Michael og Emily Eavis, sem standa að hátíðinni, og listafólk sem hefur komið þar fram í áranna rás.
Heimildarþáttaröð frá BBC í fjórum þáttum. Louis Theroux hefur alla tíð haft mestan áhuga á fólki sem er jaðarsett í samfélaginu. Hér lítur hann yfir farinn veg, skyggnist aftur í nokkur af þeim málum sem hvað mest hafa hreyft við honum á löngum ferli og hittir fólkið á ný. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.