11:55
Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Við bjóðum upp á stóra og spennandi Kilju þessa vikuna með fjölda nýútkominna bóka. Auður Ava Ólafsdóttir segir okkur frá nýju skáldsögunni sinni sem nefnist Eden. Guðrún Eva Mínervudóttir ræðir bókina sína Útsýni - hún gerist að miklu leyti á Bakkafirði. Linda Vilhjálmsdóttir fer með okkur á slóðir sínar á Seltjarnarnesi og talar um ljóðabókina humm. Úlfar Þormóðsson segir frá Usla, það er skáldsaga eftir hann sem gerist á 19. öld, á Siglufirði og í Skagafirði. Svo hittum við franska rithöfundinn Pierre Lemaitre en eftir hann hafa verið þýddar fimm bækur á íslensku. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Kyrrþey eftir Arnald Indriðason, Gættu þinna handa eftir Yrsu Sigurðardóttur og Allt sem rennur eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,