15:25
Landinn
6. nóvember 2022

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elfar Örn Egilsson.

Landinn skoðar fornleifar á Höfnum á Skaga sem eru í hættu vegna ágangs sjávar. Við hittum miðaldra mann sem nýtur þess að setja á sig varalit og ganga í kjólum. Við skyggnumst á bak við tjöldin hjá Leikfélagi Fjallabyggðar, kíkjum inn á reiðhjólaverkstæði á Ísafirði og fræðumst um verkefnið Heimskonur sem er stuðningur fyrir konur af erlendum uppruna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 28 mín.
e
Endursýnt.
,