19:35
Kastljós
Dómsmálaráðherra um kynferðisbrot og Vetrarhátíð í Reykjavík

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Það kom mörgum á óvart sem horfðu á Kveik hversu lítil réttindi og aðkomu brotaþolar hafa að eigin málum í réttarkerfinu og hversu langan tíma málin taka oft. Háværar kröfur heyrast nú um að þessu verði að breyta ? en hvenær og hversu mikið? Það er í höndum Jóns Gunnarssonar, dómsmálaráðherra, sem var í viðtali.

Játak er nafn á átaksverkefni sem gengur út á að hvetja öll framboð til sveitastjórnarkosninga til að huga að fjölbreytni og stilla upp listum sem spanna fjölbreytt litróf mannlífsins. Við ræddum við Brynhildi Heiðar- og Ómarsdóttur sem er framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands.

Vetrarhátíð í Reykjavík hefst á morgun. Þá munu upplýst listaverk prýða borgina og slá á skammdegið með fjölbreyttum leiðum en fjörið hefst þó strax í kvöld, þar sem fyrsta verk hátíðarinnar verður tendrað eftir skamma stund. Kastljós var í beinni frá Ráðhúsi Reykjavíkur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
Bein útsending.
,