20:05
Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Fyrsta Kilja ársins er á dagskrá RÚV nú á miðvikudagskvöld klukkan 20.05. Við fjöllum um rit þar sem er rakin alvarleg en afar merkileg saga, höfundurinn er Erla Dóris Halldórsdóttir, sagnfræðingur og hjúkrunarfræðingur, en þarna segir frá sjúkdómnum mislingum á Íslandi, faröldrum sem gengu hér yfir, miklu mannfalli, vörnum gegn þessum vágesti og loks bólusetningum sem kváðu hann niður. Ólafur Sveinn Jóhannesson er skáld sem kveður sér hljóðs með ljóðabókinnni Klettur - ljóð úr sprungum. Þar er rakin af hispursleysi sagan af því þegar Ólafur stóð uppi föður- og móðurlaus og þurfti ungur að ala önn fyrir systkinum sínum. Í Bókum og stöðum förum við norður í Skagafjörð, á Hóla. Þar koma við sögu miklir biskupar, en lika skáld, brotamenn og ógæfumenn. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Meydóm eftir Hlín Agnarsdóttur og Hitann á vaxmyndasafninu eftir Ísak Harðarson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 37 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,