13:10
Kastljós
Alda seld til Universal og fjármálaráðherra um sóttvarnir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Kallað er eftir tilslökunum sóttvarnatakmarkana í ljósi þess hve fáir eru að veikjast alvarlega af hinu ráðandi omíkron-afbrigði veirunnar. Sóttvarnalæknir segir að hann vinni nú að tillögum um afléttingu í skrefum en varar við að of geyst verði farið. Fjármálaráðherra hefur sagt að forsendur harðra takmarkana séu brostnar. Rætt var við Bjarna Benediktsson í þættinum.

Tilkynnt var í dag að bandaríska stórfyrirtækið Universal hafi keypt Öldu Music. Þetta þýðir að stór hluti þeirrar tónlistar sem hefur verið gefin út á Íslandi er komin í erlenda eigu. Kastljós ræddi við Sölva Blöndal, framkvæmdastjóra Öldu, um hvað þetta þýði fyrir íslenska tónlist, auk þess sem rætt var við íslenskt tónlistarfólk um fréttirnar.

Frumskógur breiðir úr sér í Gerðarsafni þessa dagana þar sem listamaðurinn Santiago Mostyn miðlar innblæstri frá Simbabve og Trinidad, og reyndar líka Svíþjóð.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 26 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,