Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.
Kallað er eftir tilslökunum sóttvarnatakmarkana í ljósi þess hve fáir eru að veikjast alvarlega af hinu ráðandi omíkron-afbrigði veirunnar. Sóttvarnalæknir segir að hann vinni nú að tillögum um afléttingu í skrefum en varar við að of geyst verði farið. Fjármálaráðherra hefur sagt að forsendur harðra takmarkana séu brostnar. Rætt var við Bjarna Benediktsson í þættinum.
Tilkynnt var í dag að bandaríska stórfyrirtækið Universal hafi keypt Öldu Music. Þetta þýðir að stór hluti þeirrar tónlistar sem hefur verið gefin út á Íslandi er komin í erlenda eigu. Kastljós ræddi við Sölva Blöndal, framkvæmdastjóra Öldu, um hvað þetta þýði fyrir íslenska tónlist, auk þess sem rætt var við íslenskt tónlistarfólk um fréttirnar.
Frumskógur breiðir úr sér í Gerðarsafni þessa dagana þar sem listamaðurinn Santiago Mostyn miðlar innblæstri frá Simbabve og Trinidad, og reyndar líka Svíþjóð.

Finnlands-sænskir lífsstílsþættir þar sem meðal annars er fjallað um matreiðslu, garðyrkju og föndur.

Heimildamynd um komu panda í dýragarðinn í Kaupmannahöfn. Fylgst er með baráttunni fyrir að fá pöndurnar til landsins þar sem drottningin, forsætisráðherrann og fleiri koma við sögu.

Stuttir heimildarþættir um sambönd manna og hunda.
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Gylfi Þ. Gíslason var hagfræðingur að mennt. Hann var þingmaður Alþýðuflokksins 1946 til 1978, og var á því tímabili menntamálaráðherra, iðnaðarráðherra og viðskiptaráðherra. Hann beitti sér fyrir heimkomu handritanna frá Danmörku 1971 og veitti þeim viðtöku fyrir hönd þjóðarinnar. Hann hafði mikið dálæti á tónlist og samdi sönglög sem hafa komið út á hljómplötum og nótum. Dagskrárefnið er úr safni Sjónvarpsins.
Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.


Hvað ætli gerist þegar hin og þessi skordýr bíta fólk og stinga? Sebastian Klein ferðast um sveitir Danmerkur og lætur bíta sig, brenna og stinga til að komast að því.

Önnur sería af þessari skemmtilegu keppni þar sem danskir krakkar reyna á hæfileika sína á ströndinni og í vatninu í æsispennandi keppni um besta strandvörðinn.

Fimmta serían af Hönnunarstirnunum. Nýir keppendur, nýjar þrautir en Nico og Andrés eru á sínum stað.

Bolli og Bjalla bralla ýmislegt við gerð á þættinum Stundinni okkar.
Bjalla finnur leynikistuna hans Bolla, eftir könnunarleiðangur um herbergið hans Bjarma og Bolli rifjar upp gamlan draum um að gerast tónlistarálfur.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Fréttir á einföldu og auðskildu máli.
Krakkafréttir dagsins: 1. Rússíbani hjá íslenska liðinu á EM í handbolta 2. Íslenskir keppendur á Vetrarólympíuleikunum 3. Lestrarkeppni grunnskólanna
Umsjón: Gunnar Hrafn Kristjánsson

Íslensk tónlistarmyndbönd.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.
Nýjar tilskipanir þýða að ekki verður gripið til sóttkvíar hjá leik- og grunnskólabörnum þótt smit komi upp í skólanum. En hvaða þýðingu hefur þetta á skólastarf? Rætt var við Ragnar Þór Pétursson, formann kennarasambands Íslands og Aðalbjörgu Ingadóttur, skólastjóra í Norðlingaskóla um næstu skref.
Björgvin Páll Gústavsson, landsliðmarkvörður í handbolta er aftur kominn í einangrun á hótelherbergi í Ungverjalandi. Hann hefur verið mjög gagnrýnin á aðstæður í Ungverjalandi og ófullnægjandi upplýsingar sem liðið fær.

Bein útsending frá Bessastöðum þar sem forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson afhendir Íslensku bókmenntaverðlaunin. Kynnar eru þau Bergsteinn Sigurðsson og Guðrún Sóley Gestssdóttir.

Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.

Veðurfréttir

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Fréttir á einföldu og auðskildu máli.
Krakkafréttir dagsins: 1. Rússíbani hjá íslenska liðinu á EM í handbolta 2. Íslenskir keppendur á Vetrarólympíuleikunum 3. Lestrarkeppni grunnskólanna
Umsjón: Gunnar Hrafn Kristjánsson

Íslensk tónlistarmyndbönd.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.