19:35
Kastljós
Skólar og sóttvarnartilslakanir og landsliðsmarkvörður í einangrun

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Nýjar tilskipanir þýða að ekki verður gripið til sóttkvíar hjá leik- og grunnskólabörnum þótt smit komi upp í skólanum. En hvaða þýðingu hefur þetta á skólastarf? Rætt var við Ragnar Þór Pétursson, formann kennarasambands Íslands og Aðalbjörgu Ingadóttur, skólastjóra í Norðlingaskóla um næstu skref.

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðmarkvörður í handbolta er aftur kominn í einangrun á hótelherbergi í Ungverjalandi. Hann hefur verið mjög gagnrýnin á aðstæður í Ungverjalandi og ófullnægjandi upplýsingar sem liðið fær.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 17 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
Bein útsending.
,