
Tíu COVID-19 smit greind í dag - 26 smit í heild
Allir þessir einstaklingar, þar á meðal þeir 10 sem greindust með veiruna í dag, voru á ferðalagi á Norður-Ítalíu eða Austurríki, og höfðu því fengið ráðleggingar um að vera í sóttkví. Erlendir ferðamenn á Íslandi, sem alla jafna hafa ekki snertingu við viðkvæma hópa, svo sem á sjúkrahúsum og öldrunarheimilum, sæta ekki sömu varúðaraðgerðum.
Engin smit innanlands enn
Í tilkynningu frá almannavörnum segir að engin smit hafi greinst sem rekja má til innlendra smitleiða. „Það blasir við að á Íslandi hafa greinst mörg tilfelli miðað við höfðatölu og í alþjóðlegum samanburði. Það er mikilvægt að hafa huga í þessu samhengi að hér hefur verið gripið til umfangsmikilla aðgerða, sem meðal annars taka til þess að setja fólk sem kemur frá áhættusvæðum í sóttkví, einangra veika, og taka sýni snemma hjá þeim sem fá einkenni, þótt væg séu. Það er mat sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra að það sé fyrst og fremst þessum aðgerðum að þakka að hér greinast smit snemma, með tilheyrandi fækkun á mögulegum smitleiðum í hverju staðfestu tilfelli,“ segir í tilkynningu frá almannavörnum.
Um 380 einstaklingar eru í sóttkví á Íslandi. Unnið er að því að auka afkastagetu í greiningu smita á sýkla- og veirufræðideild Landspítala.
Mikilvægt að hlýða fyrirmælum um sóttkví
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ítrekar að ekki hefur verið lýst yfir samkomubanni af yfirvöldum hér á landi. Engu að síður er mikilvægt að fólk sem hefur verið á skilgreindum hættusvæðum virði ráðleggingar um sóttkví. Í þeim felst að forðast samneyti við aðra einstaklinga í 14 daga. „Á mannamótum er einkar mikilvægt að til staðar sé aðstaða fyrir handþvott og handsprittun. Mælst er til að fólk noti aðrar kveðjur en handaband og faðmlög,“ segir í tilkynningunni.
Álag á síma 1700
Mikið álag hefur verið á síma 1700 í dag og síðustu daga, en þar getur fólk leitað upplýsinga í tengslum við COVID-19. Fólk getur líka leitað Fólki er líka bent á að leita eftir upplýsingum með að hringja til heilsugæslunnar. Eða senda fyrirspurn í gegnum netspjall Heilsuveru.is, en þar er hægt að komast í samband við heilbrigðisstarfsfólk.
Veiran rædd á fundi velferðarnefndar
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, mættu á fund velferðarnefndar Alþingis í dag. Þar svöruðu þeir spurningum nefndarmanna og upplýstu þá jafnframt um stöðu mál í aðgerðum yfirvalda vegna COVID-19.