
Þúsund manna Eve Fanfest aflýst vegna COVID-19
Í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar kemur fram að hjá ýmsum alþjóðlegum fyrirtækjum séu nú í gildi takmarkanir á lengri ferðalögum starfsmanna. Eftir ítarlega greiningu á áhrifum þessara ráðstafana á skráða þátttakendur á Fanfest, sem og þeirri staðreynd að margir spilarar EVE sem sæki hátíðina komi um langan veg og frá öllum heimshornum, hafi verið ljóst að óhjákvæmilegt væri að hætta við hátíðina í ár. Ákvörðunin hafi verið tekin að vandlega íhuguðu máli.
Í tilkynningu sem CCP hefur sent spilurum EVE Online segir að eflaust muni þessi ákvörðun valda einhverjum þeirra vonbrigðum en þeir muni vonandi sýna aðstæðunum skilning.
Þetta hefði verið í 15. sinn sem EVE Fanfest færi fram. Hátíðin nýtur mikilla vinsælda um heim allan og var búist við um þúsund spilurum alls staðar að úr heiminum hingað til lands.