
Peking-sáttmálinn staðfestur á ný - markmið náðust ekki
Þema fundarins í ár er stöðumat á réttindum kvenna nú aldarfjórðungi eftir að Peking-sáttmálinn var fyrst staðfestur. Ríkin lýstu í dag yfir vilja til að útrýma lögum sem mismuna konum og stúlkum á einhvern hátt, brjóta niður kerfislægar hindranir sem verða á vegi kvenna innan kerfa, félagsleg norm sem mismuna konum og stúlkum á einhvern hátt sem og brjóta á bak staðlaðar ímyndir kynjanna sem hindra framgang kvenna og stúlkna, meðal annars í fjölmiðlum.
Ríkin lýstu einnig yfir vilja til að styrkja stofnanir sem vinna að auknum réttindum kvenna og stúlkna og nýta þá tækni og nýsköpun sem fyrir er til að bæta lífskjör þeirra. Ríkin hafa einnig lýst yfir vilja til að safna gögnum, kortleggja mismunun gegn konum og stúlkum og nota tölfræði til að brjóta niður kynbundna mismunun auk þess að styrkja alþjóðlegt samstarf til að koma á raunverulegu jafnrétti.
Um leið og leiðtogar aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna endurstaðfesta og ítreka pólitískan vilja til breytinga, viðurkenna þeir um leið nýjar áskoranir við að jafna stöðu kvenna og stúlkna sem krefjast öflugra aðgerða og samstillts átaks ríkjanna, sérstaklega þegar kemur að eftirfarandi þáttum, að því er segir í tilkynningu Un Woman:
- Gera öllum stúlkum og konum kleift að mennta sig, með sérstöku tillliti til iðn- og tæknigreina.
- Tryggja konum og stúlkum jafna og raunverulega þátttöku til áhrifa og valda á öllum stigum og sviðum samfélagsins.
- Tryggja konum efnahagslega valdeflingu, til að mynda jöfn atvinnutækifæri, jöfn laun, félagslegt öryggi og lánshæfi.
- Takast raunverulega á við misskiptingu á ólaunuðum umönnunar- og heimilisstörfum sem konur og stúlkur sinna í mun meiri mæli.
- Taka raunverulega á þeim misskiptu áhrifum sem loftslagsbreytingar og náttúruhamfarir hafa á konur og stúlkur.
- Afnema skaðlega siði og ofbeldi gegn konum og stúlkum.
- Vernda konur og stúlkur í vopnuðum átökum og tryggja aðkomu kvenna í friðarviðræðum og málamiðlunum.
- Viðurkenna rétt kvenna og stúlkna til að hljóta heilbrigðisþjónustu.
- Takast á við hungur og vannæringu kvenna og stúlkna.