
Nokkur umferðaróhöpp á Akureyri vegna hálku
Langar biðraðir hafa myndast við dekkjaverkstæði bæjarins en snjó hefur kyngt niður frá því í nótt. Lögreglu hafa borist nokkrar kvartanir vegna kyrrstæðra bíla í götum nærri dekkjaverkstæðum bæjarins en unnið er að því að greiða úr þeim málum, að sögn lögreglu.
Ætla ekki að sekta fyrir notkun nagladekkja
Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi svo frá sér tilkynningu þar sem segir að ökumenn verð ekki sektaðir fyrir notkun nagladekkja í dag þrátt fyrir að aðeins megi nota þau frá 1. nóvember til 14. apríl ár hvert. Sektir vegna notkunar nagladekkja utan þessa eru nú 20 þúsund krónur á hvert dekk.
„Vegna fjölda fyrirspurna þá erum við ekki að fara sekta fyrir nagladekk þó að 1 nóvember sé ekki runnin upp. Viljum hvetja fólk til þess að fara varlega í umferðinni núna sem og aðra daga,“ segir í tilkynningu sem lögreglan sendi út á Facebook.