
Björgunarsveitir á Suðurnesjum hafa í nógu að snúast en þegar hafa borist 13 beiðnir um aðstoð vegna veðurs. Hátt í 30 björgunarmenn sinna þeim verkefnunum. Mest er um útköll vegna foks á ýmsum munum, þakplötum og klæðningum húsa.
Á Akranesi er svipaða sögu að segja, nokkuð hefur verið um aðstoðarbeiðnir. Þar fauk kerra og skemmdi bæði hús og bíl. Veðurofsinn er slíkur að húsbíll fauk út á götu.
Á höfuðborgarsvæðinu er búið að kalla út allar sveitir. Í Hafnarfirði fjúka fiskikör og tilkynnt hefur verið um garðhús sem er við það að fjúka í sundur í Vallarhverfinu. Víðar á höfuðborgarsvæðinu eru lausar þakplötur, gervihnattadiskar, grindur og fleira.
Víðar um land er veðurofsi. Björgunarsveitin á Hvolsvelli reynir að hefta fok á þakplötum á útihúsi við bæ í Landeyjum.