Kínverjar brugðust harkalega við þegar tilkynnt var að Pelosi hygðist heimsækja eyríkið Taívan í byrjun þessa mánaðar. Xi Jinping, forseti Kína, sagði meðal annars af því tilefni á símafundi með Joe Biden Bandaríkjaforseta að sá sem léki sér að eldinum endaði á að brenna sig.
- Sjá einnig: Kína beitir flugskeytum við strendur Taívan
Stjórnvöld í Kína gerðu í gær alvöru úr hótunum um hernaðaríhlutun vegna heimsóknarinnar, þegar umfangsmiklar heræfingar kínverska hersins hófust umhverfis Taívan. Herinn hefur viðhaft ögrandi tilburði og meðal annars skotið flugskeytum inn á japanskt hafsvæði.
Viðræðum vegna loftslagsvár hætt
Í dag tilkynnti utanríkisráðuneytið í Peking að samstarfi við Bandaríkin hefði verið slitið á ýmsum sviðum. Þar ber hæst að viðræðum landanna - tveggja helstu mengunarvalda heims - um loftslagsbreytingar, verður hætt.
Þá verður samráðsfundum yfirmanna í herjum beggja landa slitið. Sömu sögu er að segja um samstarf yfir landamæri gegn glæpum og sameiginleg barátta gegn eiturlyfjum verður lögð á hilluna.
Einnig verður sameiginlegt átak ríkjanna tveggja til að stöðva ferðir ólöglegra innflytjenda lagt af og viðræðum verður hætt um öryggi á höfunum.
- Sjá einnig: Hóta hernaðaríhlutun vegna heimsóknar Pelosi
Japanar fordæmdu í dag heræfingar Kínverja við Taívan, sem eru sagðar þær umfangsmestu í sögunni. Þeir segja að minnst fimm kínversk flugskeyti hafi hafnað í japanskri efnahagslögsögu. Æfingarnar eru sagðar ógn við öryggi og stöðugleika í Austur-Asíu.
Joseph Wu, utanríkisráðherra Taívans, fordæmdi fyrr í dag heræfingar Kínverja í viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC. Hann sagði að harkaleg viðbrögð við heimsókn Pelosi yrðu ekki til þess að hætt yrði að bjóða háttsettum stjórnmálamönnum lýðræðisríkja til Taívans.
Í spilaranum hér að ofan má horfa á umfjöllun um málið í kvöldfréttum.