
Danska konungsfjölskyldan slítur tengsl við skóbúð
Ríflega eitt hundrað dönsk fyrirtæki og fimm erlend njóta þessarar nafnbótar, þar á meðal Carlsberg, Bang&Olufsen og Georg Jensen. Hún þykir mikil upphafning og gefur fyrirtækjunum leyfi til að skreyta sig með danskri kórónu í auglýsingum, á umbúðum og í verslunum sínum.
Þótt þess sé ekki getið í tilkynningu hirðarinnar velkist enginn í vafa um að ástæða þess að Ecco hefur fallið úr náðinni hjá kóngafjölskyldunni eru viðskipti fyrirtækisins í Rússlandi. Ólíkt flestum dönskum og öðrum vestrænum fyrirtækjum hefur Ecco ekki dregið saman seglin þar í landi eftir innrásina í Úkraínu.
Allar 200 verslanir Ecco í Rússlandi eru enn opnar. Fyrirtækið hafði á síðustu árum fjárfest mjög á rússneskum markaði og var ekki tilbúið að fórna þeim þrátt fyrir stríð.
Ákvörðun Ecco hefur mætt harðri gagnrýni í heimalandinu og orðið til þess að stórverslanir á borð við íþróttavöruverslunina Sport 24 hafa tekið vörur Ecco úr sölu.
Mikil tengsl
Jacob Heinel Jensen, hirðfréttaritari danska blaðsins BT, segir að vegna gagnrýninnar hafi danska konungsfjölskyldan neyðst til að slíta á tengslin við Ecco. Það fari ekki saman að gagnrýna stríðsrekstur Rússa og veita þessu fyrirtæki virðingarvott.
Eigendur Ecco tengjast konungsfjölskyldunni þó sterkum böndum. Fyrirtækið var meðal þeirra sem fjármögnuðu endurbætur Schackenborg-höllinni á Suður-Jótlandi árið 2014 og eru í eigendahópi Schackenborg-sjóðsins, sem hana rekur. Höllin er ein af heimilum Jóakims prins, bróður Friðriks krónprins.
Þá bendir Jensen á að samgangur sé á milli kóngafjölskyldunnar og fjölskyldunnar á bak við Ecco.
Hefur áhrif á markaðsstarf
Talið er víst að ákvörðunin hafi neikvæð áhrif á markaðsstarf Ecco. Carsten Herholdt, eigandi markaðsstofunnar Brand Agency, segir í samtali við danska ríkisútvarpið að áhrifa þess muni gæta, ekki aðeins á Norðurlöndum heldur einnig í Asíu. Þar hafi norræn fyrirtæki lagt mikið upp úr heimaslóðum sínum og það gefist vel að geta sveipað sig konunglegum skrúða.
„Hins vegar er ekki öruggt að þetta hafi áhrif á sölutölur Ecco. Fyrirtækið er risastórt og rekur yfir 2.000 verslanir í heiminum,“ segir Herholdt. Fyrirtækið sé það þekkt, að hugsanlega haldi fólk áfram að hugsa um Ecco þegar það vantar skó, án þess að ætla sér það.