
Hátt í tveggja metra snjóskaflar í Öskju
Öskjuvegur að hluta ófær
„Í nótt og í gær þá var bara hreinlega stórhríð í Öskju þannig að Öskjuvatnsvegur, eða síðustu tveir kílómetrarnir eru ófærir. Þar eru komnir alveg tæplega tveggja metra háir skafrenningsskaflar,“ segir Sigurður Erlingsson landvörður í Öskju.
Ófært er bílum frá Drekagili og upp í Vikraborgir og erfitt að ganga svo langa leið í snjó. Hann ráðleggur gestum að leggja ekki á þessa leið fyrr en færð hefur skánað. Hann segir aðeins vera farið að létta til og það sjáist til Herðubreiðar sem sé alhvít niður í rætur.
Óvanalegt að skaflarnir séu svo háir
Er þetta óvanalegt í byrjun júlí?
„Ja, það getur snjóað hvaða dag sem er hérna á hálendinu en það er kannski óvenjulegt að það verði alveg næstum tveggja metra háir renningsskaflar,“ segir Sigurður.
„Má búast við öllu, alltaf“
Sigurður hefur lengi verið landvörður á hálendinu. Hann segir að Íslendingar séu vanir vetrarveðri um mitt sumar en enginn erlendur ferðamaður búist við snjókomu í júlí.
„Veturinn ekki alveg að hætta en sumarið er bara að byrja. Á hálendinu má búast við öllu, alltaf,“ segir Sigurður að lokum og vonar að vetrinum á hálendinu sé lokið í bili.