Eldurinn logaði glatt í bensíntanki
Eldurinn logaði að sögn sjónarvotta mjög glatt við bensínlok bílsins þegar slökkviliðið kom. Slökkviliðsmenn voru snöggir að ráða niðurlögum eldsins og voru að slökkva í síðustu glóðum þegar fréttastofu bar að garði. Myndskeið af störfum slökkviliðsins má sjá í spilaranum hér að ofan.