Árni Óskar Árnason, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir í samtali við fréttastofu að miklar eldtungur hefðu staðið út úr stafni hússins og vesturhlið þegar slökkvilið bar að garði í morgun. Sömuleiðis hafi miklum reyk stafað frá húsinu.
Talsverður tími hafi farið í að koma að vatni og sækja eldinn að sögn Árna. Nú sé verið að rífa niður úr loftum enda var mikill eldur í þaki hússins, bæði að utan- og innanverðu.
Auk þessi segir Árni nú unnið að því að slökkva eld í glæðum. Eldsupptök eru enn ókunn en ljóst sé að gríðarlega mikið tjón hafi orðið í eldinum.