Árneshreppur á Ströndum hefur fengið 500 þúsund króna styrk af ráðstöfunarfé Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, til að tryggja áframhaldandi farsímasamband á stórum hluta vega í hreppnum.
Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að styrkurinn verði nýttur til bráðabirgða til þess að standa undir kostnaði við farsímasendi sem ella yrði lokað.
Til stendur að reisa nýjan sendi við flugvöllinn á Gjögri síðar á árinu sem er hluti umfangsmikilla endurbóta á fjarskiptastöðum um land allt. Það átak hófst eftir mikið óveður á landinu í desember 2019.