María er hálfíslensk og dóttir Þóris Hergeirssonar, þjálfara norska kvennalandsliðsins í fótbolta. María er 27 ára gömul og á að baki 42 landsleiki fyrir Noreg.
Hún hóf feril sinn með Klepp í Noregi en gekk til liðs við Chelsea á Englandi árið 2017. Samningur hennar hefði runnið út nú í sumar. Hún gerði tveggja og hálfs árs samning við Manchesterliðið og er möguleiki á árs framlengingu.