Byrjaði á ósannindum
Trump var afar umdeildur maður þegar hann tók við embætti fyrir fjórum árum. Ósannindaflaumur hans í embætti hófst strax þegar hann lýsti yfir að fleiri hefðu sótt embættistöku hans en forvera hans, Baracks Obama, átta árum fyrr. Myndir frá vettvangi sýndu glögglega að mun færri voru viðstödd embættistöku Trumps og aðstoðarkona forsetans, Kellyanne Conway, reyndi að segja að stuðst hefði verið við ,,annars konar staðreyndir" eða „alternative facts“.
Fjölmiðlar ,,óvinir þjóðarinnar"
Trump og liði hans var afar uppsigað við fjölmiðla og forsetinn sagði þá verða lygamerði og óvini þjóðarinnar. Fjölmörg önnur dæmi um axarsköft og vitleysur Trumps voru nefnd og vitnað í Dan Rather, fyrrverandi fréttastjóra CBS í Bandaríkjunum, sem segir að Trump hafi þegar fengið skelfileg eftirmæli, sagan eigi eftir að dæma hann enn harðar.