
Icelandair stefnir á að senda MAX í loftið í mars
Vélarnar voru kyrrsettar fyrir tæpum tveimur árum eftir tvö flugslys sem rakin voru til galla í stýrikerfi þeirra. Eftir gagngerar endurbætur er nú farið að veita þeim flughæfnisskírteini á ný og nú er beðið ákvörðunar EASA, Flugeftirlitsstofnunar Evrópu. Haukur Reynisson flugrekstrarstjóri Icelandair segir að undirbúningur fyrir notkun vélanna sé í fullum gangi.
„Það eru ýmis verkefni sem við þurfum að klára áður,“ segir Haukur. „Við þurfum að bæta við þjálfun flugmanna. Við þurfum að gera hugbúnaðaruppfærslur á ákveðnum kerfum í vélinni og breytingar á vélinni í samræmi við tilmæli EASA. Þetta þýðir að við eigum von á að geta mögulega farið að fljúga MAX í marsmánuði.“
Haukur segir að unnið sé út frá tímalínu sem geri ráð fyrir að notkun vélanna verði leyfð í Evrópu í næstu viku. Tólf MAX-vélar verða í flota Icelandair. Félagið hefur þegar fengið sex þeirra, þrjár eru tilbúnar til afhendingar hjá Boeing og áætlað er að þrjár verði afhentar á næsta og þarnæsta ári.
MAX-vélarnar verða stór hluti af flota Icelandair. Auk þeirra er félagið með 20 þotur af gerðinni Boeing 757 og 767. „Þetta eru samtals í kringum 30 vélar,“ segir Haukur.