Upplýsingafundur Almannavarna hefst klukkan 11:00. Þar verða Alma D. Möller landlæknir, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Fundurinn verður sendur út í sjónvarpi, í útvarpi á Rás 2 og hér í spilaranum. Hér að neðan má fylgjast með beinu textastreymi fréttastofu frá fundinum.