
Ekki ástæða til að skima alla sem leggjast inn
Hættustigi aflýst á Ísafirði
Sjúklingurinn hafði áður verið á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Þar reyndust líka allir neikvæðir. Spítalinn var settur á hættustig í morgun og allt starfsfólk sent í sýnatöku. Hættustigi hefur nú verið aflýst en starfsfólk rannsóknadeildar verður áfram í sóttkví fram í næstu viku og deildin ekki opnuð nema í neyð.
Hættustigi aflýst Allir sem fóru í sýnatöku í morgun reyndust neikvæðir fyrir covid. Viðbragðsstjórn...
Posted by Heilbrigðisstofnun Vestfjarða on Fimmtudagur, 14. janúar 2021
Sjúklingurinn var sendur í sýnatöku í gær eftir að hann sýndi einkenni Covid-smits, hann er nú í einangrun. Þetta er í annað sinn í vikunni sem deild á Landspítala er lokað vegna kórónuveirusmits, í fyrradag greindist smit á hjartadeild, en það reyndist gamalt.
Ekki ástæða til að skima alla
Már Kristjánsson, formaður farsóttanefndar Landspítalans, segir ekki ástæðu til að skima alla sem leggjast inn á spítalann, það sé lítið um smit í samfélaginu og því hætt við fölskum, jákvæðum niðurstöðum. Allir sjúklingar sem eru fluttir af almennum deildum yfir á öldrunardeildir spítalans séu þó skimaðir og svo verði áfram.