
Búið að sækja um tekjufallsstyrki fyrir 2,7 milljarða
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu í dag.
Síðustu mánuði hafa yfir 3.000 fyrirtæki og tugþúsundir einstaklinga nýtt sér úrræði stjórnvalda. Þannig hafa um 1.200 rekstraraðilar fengið lokunarstyrki fyrir um 1,7 milljarða króna, samkvæmt tilkynningunni.
Enn er bið á því að opnað verði fyrir umsóknir um viðspyrnustyrki sem Alþingi samþykkti að veita fyrir jól og stefnt er að því að veita fram á mitt þetta ár. Þeir gagnast helst minni fyrirtækjum og meðalstórum. Gert er ráð fyrir að allt að 15 til 20 milljarðar fari í úrræðið úr ríkissjóði.
103 milljarðar í úrræði 2020
Starfshópur fjármála- og efnahagsráðuneytisins um úrræði vegna heimsfaraldurs áætlaði fyrr í janúar að umfang mótvægisaðgerða ríkisins fyrir árið 2020 verði 103 milljarðar króna eða um 3,6% af vergri landsframleiðslu.
Eftirfarandi yfirlit yfir efnahagsaðgerðir ríkisins vegna kórónuveirufaraldursins kemur frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu: