Mynd: Landspítalinn

COVID-19 smit á blóð- og krabbameinslækningadeild
13.01.2021 - 23:34
COVID-19 smit kom upp á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítalans. Inniliggjandi sjúklingur á deildinni, 11EG, fékk jákvætt svar við COVID-19 skimun á níunda tímanum í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá spítalanum. Sjúklingurinn var lagður inn á 11EG síðdegis í gær en hann hefur nú verið fluttur á smitsjúkdómadeild Landspítala, A7, í Fossvogi og settur í einangrun.
Ekki verður tekið við neinum nýjum innlögnum á blóð- og krabbameinslækningadeild en deildin er í fullri starfsemi.
Skima þarf um 60 manns vegna smitsins
Um 30 sjúklingar og 30 starfsmenn verða skimaðir snemma í fyrramálið, segir í tilkyninngunni, og ættu fyrstu niðurstöður úr þeirri skimum að liggja fyrir um hádegisbil. Viðkomandi einstaklingar eru ýmist í sóttkví eða vinnusóttkví B þar til þær niðurstöður berast. Samhliða hefur verið gripið til ítrustu sóttvarnaaðgerða á deildinni.
Ekki liggur fyrir hvernig sjúklingurinn smitaðist, en þó er talið líklegast að sjúklingurinn hafi verið smitaður þegar við innlögn. Smitrakning stendur yfir.