
Ríkisstjórnin afgreiddi níu náðunartillögur í gær
Ein af þeim sjö tillögum sem starfshópurinn lagði fram í skýrslu í júní síðastliðnum var að veita þeim sem væru búnir að vera lengur en þrjú ár á boðunarlista, hafa verið dæmdir fyrir minni háttar brot og eiga ekki ólokin mál í refsivörslukerfinu, skilorðsbundna náðun. Með því mætti fækka töluvert á boðunarlistanum, líkt og hafi verið gert í Danmörku árið 2005.
Í skýrslunni segir að löng bið eftir afplánun í fangelsi sé í raun viðbótarrefsing sem geti haft neikvæð áhrif á dómþola. 116 dómþolar hafi verið á boðunarlista í þrjú ár eða lengur. Í stjórnarskránni komi fram að forseti Íslands náði menn og veiti almenna uppgjöf saka. Samkvæmt 1. málsgrein 13. greinar laga um fullnustu refsinga skuli dómsmálaráðherra skipa þriggja manna náðunarnefnd, til þriggja ára í senn og að allar náðunarbeiðnir skulu sendar nefndinni. Nefndin láti svo ráðherra í té rökstudda tillögu um afgreiðslu á náðunarbeiðnum.