Mynd: RÚV

Athugið þessi frétt er meira en 4 mánaða gömul.
Nýtt tilfelli af riðu staðfest í Skagafirði
17.11.2020 - 15:36
Riðusmit hefur verið staðfest á einum bæ til viðbótar í Tröllaskagahólfi. Bærinn heitir Minni-Akrar og er staðsettur í Akrahreppi í Skagafirði. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Sýnið var tekið á sláturhúsi og greint á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Á búinu er nú um hundrað fjár. Riða hefur nú verið staðfest á fimm bæjum í Tröllaskagahólfi frá því í lok október.
„Matvælastofnun ítrekar að flutningar fjár innan Tröllaskagahólfs og frá hólfinu eru bannaðir. Matvælastofnun hvetur bændur til þess vera vakandi fyrir einkennum riðuveiki í kindum sínum og hafa þá samband við héraðsdýralækni sem sér til þess að sýni séu tekin. Einnig er bændum bent á að hafa samband vegna sýnatöku úr fé sem drepst eða er aflífað sökum slysa eða annarra sjúkdóma. Sýnatakan er bændum að kostnaðarlausu.“ segir í tilkynningunni.