
Nýtt áfangaheimili tekið í notkun á Akureyri
Áfangaheimili er tímabundið húsnæði fyrir fólk sem hefur átt við áfengis- og annan vímuefnavanda að stríða og er í virkri endurhæfingu eftir meðferð. Á áfangaheimilinu, sem fengið hefur nafnið Benedikta, getur fólk á öllum aldri tekið herbergi á leigu í þrjá til 12 mánuði að lokinni meðferð hjá SÁÁ. Markmiðið er að búa fólki öruggt umhverfi og aðstoða það við að fóta sig í samfélaginu að nýju.
Mikil þörf á heimili á landsbyggðinni
Þuríður Þórðardóttir er ein þeirra rekur áfangaheimilið. Hún segir mikla þörf fyrir slíkt úrræði enda engin í boði fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Það sé skilyrði að íbúar hafi lokið meðferð hjá SÁÁ og sæki stuðning þangað. Í húsinu var eitt sinn gistiheimili, þar eru 12 herbergi og fyrsti íbúinn flytur inn í dag. Heimilið er rekið án opinberra styrkja.
Mikil og jákvæð viðbrögð
Sjálf hefur Þuríður verið í AA-samtökunum í 25 ár og er málefninu vel kunnug. Hún segir að viðbrögðin hafi ekki látið á sér standa og fjölmargar fyrirspurnir hafi borist. Hörður Oddfríðarson, hjá göngudeild SÁÁ á Akureyri, tekur nýja áfangaheimilinu fagnandi og segir að samtökin séu boðin og búin að þjónusta íbúa þar. Mikil þörf sé fyrir fleiri pláss á áfangaheimilum landsins og tímabært að fá eitt slíkt á Akureyri.