Mynd: RÚV - Ljósmynd

Athugið þessi frétt er meira en mánaðargömul.
Fleiri sjúklingar með COVID-19 hafa verið lagðir inn á Landspítalann síðasta sólarhringinn. Þeir eru nú orðnir 23. Í gær greindust 94 kórónuveirusmit. Langflest smitin eru á höfuðborgarsvæðinu.
Sóttvarnaraðgerðir voru hertar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þar mega 20 koma saman. Veitingastaðir eiga að loka klukkan 21. Líkamsræktarstöðvum og sundstöðum hefur verið lokað.
Í morgun sendi ríkislögreglustjóri út tilkynningu um sóttvarnir á höfuðborgarsvæðinu. Þær eru sem hér segir:
- Vera eins mikið heima og hægt er.
- Fara ekki til eða frá höfuðborgarsvæðinu meira en nauðsynlegt er.
- Helst fari aðeins einn úr hverri fjölskyldu í búðir.
- Takmarka enn frekar heimsóknir til fólks sem er viðkvæmt fyrir sýkingum.
- Helst fari aðeins þeir í sund sem þurfa að gera það vegna heilsu sinnar.
- Jógahópar, gönguhópar, kórar, hjólahópar og aðrir slíkir hópar, geri hlé á starfsemi sinni næstu tvær vikur.
- Viðburðum sem eiga að fara fram næstu tvær vikur verði frestað.
- Allir staðir og verslanir á höfuðborgarsvæðinu tryggi fjöldatakmarkanir eins vel og hægt er og séu með handspritt fyrir alla.
- Höfuðborgarsvæðið er Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes og Mosfellsbær. Kjalarnes og Kjósarhreppur eru líka á höfuðborgarsvæðinu.
Tilkynninguna má annars lesa hér:
- Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ítreka tilmæli sín vegna aukins fjöldi smita einkum á höfuðborgarsvæðinu, vegna Covid-19 síðustu daga og aukið hafa líkur á veldisvexti í faraldrinum. Búast má við að tölur um fjölda smita verði háar næstu daga. Tilmælin eru;
- Hvetjum alla á höfuðborgarsvæðinu til að vera eins mikið heimavið og kostur er.
- Ekki vera á ferðinni til eða frá höfuðborgarsvæðinu nema nauðsyn sé til.
- Verjum viðkvæma hópa og takmörkum heimsóknir til einstaklinga í áhættuhópum eins og hægt er.
- Takmörkun fjölda í búðum – einn fari að versla frá heimili ef kostur er
- Hvatt er til þess að þeir sem standi fyrir viðburðum á höfuðborgarsvæðinu fresti þeim
- Klúbbar, kórar, hlaupahópar, hjólahópar og aðrir hópar sem koma saman geri hlé á starfsemi sinni.
- Allir staðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem almenningur á erindi herði allar sínar sóttvarnaraðgerðir, takmarki eins og hægt er fjölda, tryggi að allir geti sótthreinsað hendur við innganga, sótthreinsi snertifleti og gæti vel að hægt sé að virða fjarlægðarmörk.
- Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu geri hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum.
- Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu fresti keppnisferðum út á land.
- Allir sem finni fyrir hinum minnstu einkennum haldi sig heima, fari í sýnatöku og líti á að þeir séu í einangrun þar til neikvæð niðurstaða úr sýnatöku liggi fyrir.