
Í viðtali við blaðið Danmark, sem rakið er á vef DR, segir forsætisráðherrann blasa við að Danir séu farnir að slaka fullmikið á. Fólk noti minna handspritt, standi of þétt saman í of stórum hópum og svo megi áfram telja. Hvernig haustið verður, segir Frederiksen, veltur á þróuninni næstu daga.
Nánast allt sett á ís
Áhyggjur hennar og ríkisstjórnarinnar af þróun mála eru svo miklar, segir hún, að þau skref sem sem stíga átti til að draga úr takmörkunum og opna samfélagið eftir nokkra daga, hafa nú nánast öll verið sett á ís.
Hugðust fara í fjórða stig opnunar í ágúst
Fjórða stig afléttingar átti að hefjast í þessum mánuði. Það fól meðal annars í sér að koma næturlífinu nánast í fyrra horf með því að heimila dansstöðum, nætur- og spilaklúbbum og skemmtistöðum almennt að hefja hefðbundna starfsemi á ný.
Úr því verður ekki á næstunni, og heldur ekki boðaðri rýmkun á samkomutakmörkunum. Því megi megi áfram að hámarki 100 manns koma saman en ekki 200 eins og til stóð. Ekki verði hins vegar vikið frá áformum um að heimila menntastofnunum, sem verið hafa lokaðar, að hefja aftur starfsemi.