
Verktakafyrirtæki vill 248 milljónir vegna knatthúss
Stefnan var lögð fram á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í morgun.
Hafnarfjarðarbær auglýsti eftir tilboðum í hönnun og byggingu knatthúss í Kaplakrika í byrjun árs 2018. Þrjú tilboð bárust og reyndust ÞG verktakar eiga lægsta tilboðið sem hljóðaði upp á tæpa 1,3 milljarða. Bæjaryfirvöld ákváðu hins vegar að hafna öllum tilboðum þar sem gert hefði verið ráð fyrir 720 milljónum í fjárhagsáætlun bæjarins.
Fram kemur í stefnu ÞG verktaka að sú upphæð hafi verið byggð á reynslu Fimleikafélags Hafnarfjarðar, FH; frá byggingu knatthúss sem tekið var í notkun árið 2005 eða 13 árum áður en umrætt útboð fór fram.
Í stefnunni er einnig vitnað til úrskurðar kærunefndar útboðsmála í málinu. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun bæjaryfirvalda um að hafna tilboðinu hefði verið ólögmæt. Þá segir í stefnunni að ÞG verktakar og Hafnarfjarðarbær hafi ekki komið sér saman um fjárhæð skaðabóta þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Stefnan verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness þann 2. september.