
Slökkvistörfum lauk hálffjögur í nótt
Hátt í sextíu manns tóku þátt á slökkvistarfi
Um fimmtíu til sextíu manns frá slökkviliðinu tóku þátt í aðgerðunum í gær. Vettvangur var afhentur lögreglu í kjölfarið sem heldur áfram rannsókn þar í dag.
Sex voru fluttir á sjúkrahús. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan fólksins sem flutt var á sjúkrahús. Þrír voru handteknir á vettvangi brunans. Lögreglan er að kanna hvaða tengsl þau höfðu við vettvanginn.
Talið er að sex hafi búið á efstu hæð hússins sem brann og að um sex til tíu manns hafi verið í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Fjögur sluppu út úr húsinu ýmist með því að stökkva út um glugga eða með aðstoð slökkviliðs. Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn, gat ekki sagt til um hvar tveir af sex íbúum væru niðurkomnir þegar hann var spurður í fréttum sjónvarps í gær.
Rauði krossinn veitti um tíu manns áfallahjálp í kjölfar brunans. Þeirra á meðal eru sjónarvottar á vettvangi og aðstandendur fólksins sem var flutt á sjúkrahús. Áfallahjálp var bæði veitt á vettvangi brunans og á sjúkrahúsinu, auk þess sem að einhverjir höfðu samband við Rauða krossinn.